Frí

Jæja, komiði nú öll sömul margblessuð og sæl. Þá er maður mættur heim á klakann á nýjan leik og nú verður loksins tekið almennilegt stopp á þetta. Fyrra árinu í skólanum er lokið og það seinna byrjar ekki aftur hjá mér fyrr en um miðjan nóvember, svo maður getur þá notið þess að vera hér í heimahögum í rúma tvo mánuði. Ekkert nema gott um það að segja.

Annars gekk fyrsta árið hjá mér bara alveg ljómandi vel. Fékk einkunnir í hendurnar í gær og lokaeinkunnin mín var 80, sem var næsthæsta einkunnin í bekknum. Svo ég get ekki verið annað en sáttur með það. Þannig að núna er maður kominn með diplómu í hljóðverkfræði. Næsta skref er að taka BA gráðuna, sem er eitt ár til viðbótar, einnig í heilsársnámi eins og fyrra árið var, sem þýðir að ég fæ eingöngu fjórar frívikur frá nóvember á þessu ári fram í nóvember á næsta ári. Dúndur.

En hvað er annars að frétta? Heimskuleg spurning að spyrja að á bloggi, finnst ykkur ekki? Ég er hress. Hress sem fress. Kátur sem slátur. Í stuði með guði. Glaður sem… maður. You get the point.

Ég fann loksins nýja íbúð í Amsterdam eftir töluverða leit. Það er algjör hausverkur að leita sér að húsnæði þarna ytra, svo það var gríðarlega gott að ljúka því af áður en ég fór heim í frí. Það hefði verið tvöfaldur hausverkur að þurfa að leita að einhverju héðan frá Íslandi. En ég verð sem sagt með tvo meðleigjendur með mér næsta árið. Annar gaurinn er nýbyrjaður í skólanum á sömu braut og ég og verður þar næsta árið. Hinn dúddinn er Íslendingur að uppruna en hefur búið í Amsterdam síðan hann var þriggja ára gamall. En hann hefur haldið íslenskunni við í öll þessi ár og kann því bæði tungumálin reiðbrennandi. Það verður munur að búa með einhverjum sem kann inn á allt þarna, þekki samfélagið inn og út og getur upplýst mann um eitt og annað forvitnilegt. Það mun gefa dvölinni þarna úti aðra vídd.

Jæja, ég ætla að henda mér í rúmið mitt góða. Hafið það gott.

Úfff…

30 ára og úrslitaleikur í afmælisgjöf!

ÞrítugurÞá er maður orðinn þrítugur, sem þýðið að spádómurinn rættist ekki (þeir fatta það sem fatta). Ég bjóst alveg eins við því að vakna í morgun, orðinn gráhærður og með staf, en það eru víst einhver á í það ennþá. Þrjátíu ár eru ekki neitt… isss, Einar frændi minn er 40 ára! En orðið “fertugsaldurinn” er orð sem ég vil helst ekki hafa eftir mér (oftar en í þetta eina skipti). Ég man að ég hugsaði það sama þegar ég varð 20 ára, hvað það væri skrýtið að maður væri kominn á þrítugsaldurinn. En mér fannst það bara meira kúl þá. Þetta þykir mér minna kúl, enn sem komið er allavega. Maður lærir kannski að elska þetta með tímanum.

Svo fékk maður þessa líka glæsilegu afmælisgjöf rétt í þessu – Íslendingar komnir í úrslitaleikinn í handboltanum á Ólympíuleikunum. Þvílík og önnur eins snilld! Ansi góð afmælisgjöf það! Það er svona þegar maður gerir ekki miklar væntingar til liðsins, að þá koma þeir manni mest á óvart. Gull yrði auðvitað ólýsanlega gott, en ég er sáttur með að við vinnum bara til verðlauna. Það er stórkostlegur árangur og alveg frábært fyrir menn eins og Óla Stefáns og Sigfús Sigurðsson, sem eru búnir að vera í þessu hvað lengst. Ég samgleðst þeim alveg út í hið óendanlega.

Í afmælisbloggum mínum í gegnum árin hef ég verið vanur að líta aðeins á hvað tölustafir samsvarandi aldurs míns þýða og hvaða merkingu þeir hafa um víða veröld. Hefðin heldur hér áfram.

  • Í vestrænni tónfræði eru í það heila 30 dúr og moll tónar.
  • Þrjátíuára stríði varði, jú einmitt, í 30 ári.
  • Grikkland hefur landnúmerið 30 þegar hringja þarf til landsins.
  • Það voru 30 lög á Hvíta Albúminu með Bítlunum.
  • Júdas sveik Jesú fyrir 30 silfur peninga samkvæmt því er Biblían segir.
  • Og síðast en ekki síst: Spánverjar skoruðu eingöngu 30 mörk gegn 36 mörkum Íslendinga í undanúrslitaleik Ólympíuleikanna 2008!!!

Jæja, skóli í kvöld til klukkan 20:00 og eftir það verður kíkt aðeins í bæinn og fengið sér öl í tilefni dagsins til að fagna þessum tveimur merku áföngum.

Áfram Ísland á sunnudaginn!

Það er Þjóðhátíð

… vildi bara láta ykkur vita!

Skál!

Heim á leið

Jæja, þá eru ekki nema rétt rúmir tveir sólarhringar þar til maður fer að skríða í loftið frá Eindhoven flugvelli. Já, Eindhoven. Meira vesenið að geta ekki flogið beint frá Amsterdam, sem ég hefði svo sem getað gert hefði ég beðið og tekið sénsinn á Icelandair. En mér fannst betra að gera þetta tímanlega og taka Iceland Express pakkann á þetta, því hann var ódýrari kosturinn þá. Ekki að það skipti neitt miklu máli svo sem… Express er í eigu Icelandair núna svo það er lítil sem engin samkeppni á þessum markaði lengur, svo Icelandair geta sprengt þessi verð upp úr öllu valdi án teljandi áhyggja. Sniðugt að kaupa svo upp alla samkeppnisaðila til að útrýma allri sanngirni á verðlagi. Andskotans ástand! En maður þegir auðvitað bara og lætur vaða yfir sig eins og vanalega.

En mikil skelfingar ósköp verður nú gott að komast heim maður! Þetta er búin að vera löng bið, alveg síðan í janúar. En maður hefur haft mikið meira að gera eftir áramót heldur en fyrir þau, þannig að tíminn hefur liðið mun hraðar. Og nú tekur við 2ja vikna sumarfrí sem verður nýtt til hins ítrasta. Svo ítarlega mun ég nýta mér það að ég tek mér meira að segja 3 daga aukalega í frí, svo ég þurfi nú ekki að stinga af á miðri Þjóðhátíð. Hef fram til miðvikudagsins 6. ágúst að jafna mig eftir hátíðina og koma mér aftur út og í skólann. Þá tekur við lokaspretturinn í náminu sem verður ansi annasamur.

Annars er bara alveg fínt að frétta. Ég nenni samt ekki að telja upp hvað það er sem er að frétta, svo þið verðið bara að trúa mér þegar ég segi að það sé “fínt” að frétta. Læt það nægja að sinni.

Það var skítt hvernig fór fyrir Hollendingum í Evrópukeppninni. En þeir duttu úr keppni á móti sprækum Rússum sem þjálfaðir eru af Guus Hiddink, sem er auðvitað goðsögn hérna í Hollandi. Svo þetta var ekki eins slæmt áfall og, segjum, ef þeir hefðu dottið út á móti Þýskalandi. Það hefði verið óbærilegt fyrir landann hér.

Jæja, ég nenni þessu ekki. Ætla að slútta þessu á nýju lagi hérna. Þetta er af nýrri plötu með meistara Beck og heitir Youthless. Grúúúúví sjitt!

Sjáumst!

Euro 2008 fever!

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Evrópukeppnin í knattspyrnu fer fram um þessar mundir, hvað þá ef þú býrð í Hollandi. Þú þarft væntanlega að vera í einangrun í fangelsi til að láta þetta framhjá þér fara hér í landi. Hér er allt undirlagt knattspyrnu, hvort sem það er í fjölmiðlum, verslunum, opinberum stofnunum eða heimilum. Það er alls staðar skreytt í tilefni mótsins, utan á öðru hverju heimahúsi hanga appelsínugulir fánar og veifur, strætin í miðborginni iða af appelsínugulum skreytingum, verslanir selja appelsínugulan fatnað í tonnavís, matvæli og aðrar neysluvörur eru settar í appelsínugular umbúðir og svo mætti lengi telja. Ég er viss um að ef tekin væri loftmynd af Evrópu utan úr geimnum, þá væri Holland appelsínugult á litinn. Í þessum töluðu orðum er ég einmitt að borða appelsínugulan kleinuhring og drekka mjólk með… úr appelsínugulri fernu!

Ég horfði á leikinn í gær, þar sem Hollendingar fóru nokkuð létt með Ítali, unnu þá 3-0. Ég spjallaði við nágranna mína í hálfleik, aldraða konu og son hennar (sem bæði voru að sjálfsögðu í appelsínugulum klæðum). Þau voru frekar hissa yfir þessu, enda eru Hollendingar ekkert endilega að gera neinar ofsavæntingar, eru frekar raunsærri þegar kemur að stórmótum í íþróttum heldur en við Íslendingar t.d.

En það var auðvitað hamingjan ein hvert sem maður leit eftir sigurinn í gær. Við kíktum aðeins á hverfisbarinn eftir leikinn, þar sem enn var fólk að fagna, en samt frekar rólegt svona heilt yfir. Enda var nú bara mánudagskvöld. Það verður eflaust meira fjör yfir þessu á föstudaginn, þegar Hollendingar mæta Frökkum. Þá er ætlunin að kíkja niður í bæ og horfa á leikinn á einhverju torginu þar í hópi fjölmennis. Og ef sá leikur vinnst, þá má sko alveg gera ráð fyrir alvöru fjöri!

En já, stemningin fyrir þessu móti hérna er alveg ótrúlega skemmtileg og magnað að fá að upplifa þetta. Þetta væri auðvitað skemmtilegra ef maður skildi tungumálið, enda eru nánast allar sjónvarpsstöðvar hérna með einhverskonar þætti sem tengjast keppninni á einn eða annan hátt, en það er auðvitað allt saman á hollensku. Maður finnur samt fyrir þessu hvert sem maður fer og það taka allir þátt í stemningunni, hvort sem það eru háaldraðar kerlingar, kornungir villingar eða eitthvað þar á milli, þá hafa allir hér sama áhugamálið þessa dagana: Fótbolta. Svona á þetta að vera!

Áfram Holland!

Lausnir við tónlistargetraun #3

Jæja, þá hafa mér borist ágiskanir frá 7 þáttakendum í tónlistargetrauninni, sem er nokkuð góð þáttaka bara. Ég get ekki verið annað en sáttur við það. Það var líka gaman að sjá að fólk var allavega að giska þótt það væri ekki endilega með allt saman á hreinu.

Keppendur voru þessir:

  • Ástþór
  • Jón Helgi
  • Sindri Freyr
  • Stefán Barga
  • Sunna
  • Tóta
  • Viktor Smári

Og lögin voru sem sagt þessi:

#1. Lenny Kravitz – Rock and Roll Is Dead
Þetta höfðu allir rétt nema Tóta, sem giskaði á hljómsveitina Deep Purple (engin ágiskun á nafn lagsins hjá henni).

#2. Space Hog – In The Meantime
Gamall og góður 90s smellur, eitt af fjölmörgum einslagsundrum frá þessum tíma. Sindri Freyr var sá eini sem fékk 3 stig fyrir þetta. Ástþór vissi hvað lagið hét og Stebbi var með hljómsveitina, en hann giskaði á að lagið héti “In the Moment”. Ekki fráleidd ágiskun, Stebbi, en ég gat því miður ekki gefið þér rétt fyrir þetta. Aðrir skiluðu auðu á þetta lag.

#3. Boston – More Than a Feeling
Þetta voru allir með á hreinu, enda auðþekkjanlegt og klassískt lag.

#4. Otis Reading – Dock of the Bay
Þessu svöruðu allir rétt nema Viktor Smári og Jón Helgi. Viktor giskaði nokkuð skemmtilega á “Flautulag” meðan Jón Helgi sleppti því alfarið að giska.

#5. Manic Street Preachers – If You Tolerate This Your Children Will Be Next
Þetta lag flæktist ekki fyrir neinum. Allir með þetta rétt.

#6. Dexy’s Midnight Runners – Come On Eilene
Fimm af sjö þáttakendum voru með þetta alveg á kristaltæru. Jón Helgi og Sunna slepptu því hins vegar bæði að giska.

#7. Pelican – Jenny Darling
Þetta var sennilega erfiðasta lagið í þessari getraun, enda hafði ég þetta með af ásettu ráði til að gera ykkur svolítið erfiðara fyrir. Pétur Kristjáns og félagar í Pelican fluttur lagið Jenny Darling. Stebbi var einn með 3 stig fyrir þetta. Ástþór fékk 1 stig fyrir að geta nafnið á laginu, en var hins vegar ekki með hljómsveitina á hreinu. Tótu fannst þetta hljóma eins og eitthvað með Monty Python og Sindri ákvað að giska út í loftið og skaut á “Dancing in the Moonlight” með Thin Lizzy. Aðrir svöruðu engu.

#8. Toto – Hold the Line
Viktor, Sunna og Stebbi fengu öll 3 stig fyrir þetta. Tóta fékk stig fyrir að geta hljómsveitina rétt, en eins og Nonni, Ástþór og Sindri Freyr, giskaði hún á að lagið héti “Love Isn’t Always on Time”, sem er vissulega lína úr laginu, en ekki titill þess. Nonni og Sindri héldu svo að þetta væri hljósveitin Foreigner, meðan Ástþór giskaði á Boston.

#9. Dire Straits – Walk of Life
Tóta, Jón, Viktor, Sindri og Stebbi fengu fyrir þetta 3 stig. Ástþór fékk 1, en hann giskaði á að lagið héti “Walk All Night”. Close, but no cigar, Ástþór. Sunna gaf skít í þetta og svaraði “Eitthvað suðurríkja drasl!”. Ekki aldeilis, Sunna mín.

#10. Tweety – Gott Mál
Eins og hitt íslenska lagið í þessari getraun, þá var þetta í erfiðari kantinum. Stebbi og Tóta voru með þetta alveg hárrétt, meðan Ástþór var með hljómsveitina á hreinu, en giskaði á lagið “Krösj (eða einhver enskusletta)”. Ekki vitlaus ágiskun svo sem, þar sem er farið mjög frjálslega með enskuslettur í þessu lagi. Annars giskuðu Sindri og Sunna á hljómsveitina Todmobile; Sunna svaraði engu lagi meðan Sindri sagði Stúlkan. Viktor smári hélt einnig að lagið héti Stúlkan, en giskaði nokkuð furðulega á að Sykurmolarnir væru flytjendur. Jón Helgi giskaði ekki á þetta.

Stigin féllu sem hér segir:

  • 1. Stefán Braga – 28
  • 2. Sindri Freyr – 21
  • 3. Tóta – 19
  • 4. Ástþór – 19 (Jafnmörk stig og Tóta, en skilaði svörum inn seinna)
  • 5. Viktor Smári – 18
  • 6. Sunna – 15
  • 7. Jón Helgi – 12

Og þar hafið þið það. Stefán Bragason kom óvæntur inn í keppnina á lokasprettinum og svaraði öllu rétt, nema hann var með nafnið á einu laginu vitlaust og var því aðeins hársbreidd frá fullu húsi stiga. Til hamingju með sigurinn, Stebbi! Þú hefur eignað þér montréttinn fram að næstu getraun.

Manchester United Evrópumeistarar 2008!

Enn og aftur, til hamingju Man Utd aðdáendur!

Yndislegt!

Tónlistargetraun #3

Ég ætti nú að vera læra undir próf eins og er, en auðvitað finnur maður sér eitthvað annað og “betra” að gera undir slíkum kringumstæðum. Þannig að ég ákvað að smella saman eins og einni tónlistargetraun, svona aðeins til að endurvekja þennan fína leik. Það er komið rétt rúmlega ár síðan ég var síðast með tónlistargetraun, eða þann 11. maí í fyrra. Þannig að það er löngu kominn tími á nýja getraun.

Það var ágætis þátttaka síðast og ég vona að hún verði allavega jafngóð núna, ef ekki betri. Því fleiri sem taka þátt, því skemmtilegri verður leikurinn. Og ekkert vera hafa áhyggjur af því ef þið séuð ekki með þetta alveg 100% á hreinu. Sendið mér bara svörin við því sem þið vitið eða haldið að þið vitið, eða giskið bara á það sem þið vitið ekki eða eruð í vafa með. Mér er skítsama hvernig svörin líta út, svo lengi sem ég fái svör frá sem flestum!

Jæja, snúum okkur þá að leiknum. Getraunin samanstendur af brotum úr 10 lögum sem ég hef klippt saman. Í brotunum eru engir textar, aðeins laglínur, sóló og melódíur sem ættu að kveikja á perunni hjá ykkur. Ég held að þessi getraun sé kannski í við erfiðari en síðast, en þó veit ég ekki. Síðasta getraun fannst mér (og ykkur sem tókuð þátt) aðeins og auðveld, svo ég lofaði því að sú næsta yrði aðeins strembnari. En þetta er alls ekki of erfitt, það eru lög þarna sem allir eiga að þekkja og kannast við og svo kannski 2-3 lög sem ættu að flækjast fyrir sumum.

Stigagjöfinni er þannig háttað:

Réttur flytjandi = 1 stig
Rétt nafn á lagi = 1 stig
Réttur flytjandi og rétt nafn á lagi = 3 stig

Mest er hægt að fá 30 stig í heild fyrir að giska rétt á alla flytjendur og heiti allra laga.

Getraunina má nálgast með því að smella hér eða einfaldlega smella á play hér fyrir neðan.

Svör berist svo til mín á MSN eða í gegnum e-mail (hvoru tveggja er andrihugo[hjá]hotmail.com). Vinsamlegast svarið ekki í comentakerfið!

Glory, Glory!!

Mikið ofbosðlega var ljúft að sjá Manchester United hampa enska úrvalsdeildartitlinum í gær! Ég óska Man Utd aðdáendum nær og fjær til hamingju með titilinn og fagna þessu hér með léttu lagi og nokkrum myndum.


Svo er það bara Moskva næst!

WordPress Themes