Tónlistargetraun #5

Þá er komið að tónlsitargetraun #5 hérna á AndriHugo.com. Ég hef ekki verið með getraun að neinu tagi síðan rétt fyrir jólin síðustu, svo þetta er löngu orðið tímabært. Ég er búinn að fá þónokkrar fyrirspurnir síðan þá um það hvenær von sé á næstu getraun, þannig að það er greinilega einhver áhugi fyrir þessu. Og þar sem ég er að pósta þessu á Facebook líka er ég að vonast eftir sæmilegri þáttöku.

Getraunin samanstendur af 10-15 sekúndna brotum úr 10 lögum sem ég hef klippt saman í eina langa runu. Í brotunum eru engir textar, aðeins laglínur, sóló og melódíur sem ættu að kveikja á perunni hjá öllum. Og eins og alltaf vil ég fá ágiskanir frá sem flestum, alveg sama hversu vel eða illa þið haldið að þið hafið staðið ykkur. Sumt af þessu er auðvelt og annað sjálfsagt örlítið erfiðara, en svarið bara því sem þið haldið að þið getið og giskið svo á restina. Það eru alls ekki margir sem eru með þetta allt saman á hreinu! Því fleiri sem taka þátt, því skemmtilegri verður leikurinn, enda er leikurinn fyrst og fremst til þess gerður að hafa gaman af honum.

Stigagjöfinni er þannig háttað:

Réttur flytjandi = 1 stig
Rétt nafn á lagi = 1 stig
Réttur flytjandi og rétt nafn á lagi = 3 stig

Mest er hægt að fá 30 stig í heild fyrir að giska rétt á alla flytjendur og heiti allra laga.

Getraunina má nálgast með því að smella hér eða einfaldlega smella á play hér fyrir neðan.

Svör berist svo til mín á MSN eða í gegnum e-mail (hvoru tveggja er andrihugo [hjá] hotmail.com). Einnig má senda svörin til mín í einkaskilaboðum á Facebook. Vinsamlegast svarið ekki í comentakerfið, hvorki hér á blogginu né á Facebook!

No Comments

No comments yet.

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

WordPress Themes