Nýtt og betra bloggkerfi
Góðir hálsar, leyfið mér að kynna fimmtu útgáfu bloggsins á AndriHugo.com. Nú er ég búinn að færa bloggið yfir á WordPress kerfið, kerfi sem ég hef lengi ætlað að skipta yfir í en einhverra hluta vegna aldrei látið verða að því… fyrr en nú! Og það sem meira er að þar sem WordPress býður upp á margfalt betri yfirflutningsmögleika milli bloggkerfa en önnur kerfi sem ég hef notað, þá eru allar bloggfærslur mínar frá upphafi núna inn á eina og sama staðnum, allt frá því ég byrjaði að blogga í október 2003. Þetta er allt annað líf, hægt að leita í öllur ruglinu í mér langt aftur í tímann og svona. Magnað alveg. En það versta er að commentin fluttust ekki á milli kerfa, sem er frekar skítt. Það væri öllu meira vesen að færa þau yfir, svo ég lét það eiga sig. En það verður að hafa það, lítil fórn svona heilt á litið.
En það er annars allt gott að frétta bara. Sumarfríið var stórkostlegt, frábært að komast aðeins heim í sumar og það var alveg yfirdrifið nóg að gera hjá mér þær þrjár vikur sem ég var í Eyjum. Þjóðhátíðin var með allra besta móti, frábært veður allan tímann og virkilega góður andi yfir hátíðinni í ár. Fyrir utan hátíðina var ég bara í góðu yfirlæti á heimaslóðum, tók þátt í Þjóðhátíðarútvarpi Gufunnar, setti saman Þroskahefti með félögunum, kíkti í heyskap með Látrunum og margt fleira. Frábært sumarfrí alveg og gott meðal fyrir sálina, alltaf gott að komast aðeins heim.
Eftir að ég kom svo aftur út til Amsterdam tók við heljarinnar verkefnavinna fyrir skólann. Það fylgdi því auðvitað hið vanalega stresskast en það hafðist fyrir rest að skila öllu af sér á réttum tíma, eins og það gerir nú alltaf (7-9-13). Ég fór líka á Lowlands mússíkfestivalið sem starfsmaður yfir eina helgi, sem var alveg stórskemmtilegt. Lowlands er stærsta tónlistarhátíð Hollands og ég var þar að vinna sem aðstoðamaður í upptökuvagni að taka upp hljómsveitir á einu sviðinu. Mikil vinna en virkilega gaman að taka þátt í þessu og sjá hvernig þetta fer allt saman fram. Maður fékk líka smá tíma aflögu milli atriða til að rölta um svæðið og skoða bönd á öðrum sviðum og sá ég meðal annars Them Crooked Vultures, sem var alveg svakalegt! Ef þið hafið ekki heyrt um það band þá verðið þið að bæta úr því. Hæpið í kringum þá er með ólíkindum og þeir eru ekki einu sinni búnir að gefa út eitt einasta lag! En það er líka alveg stórverðskuldað hæp skal ég segja ykkur! Platan þeirra kemur út í október og bíð ég spenntur eftir þeirri útgáfu!
Annars er ég kominn í stutt frí núna frá skólanum. Við fáum fjórar vikur í svokallað “work placement”, eiginlegur starfsþjálfunarmánuður þar sem okkur er ætlað að finna vinnu á okkar sviði og vinna 100 klukkustundir í interneship. En þar sem ég vann mitt internship hjá Rooms of Red Bull í allt sumar (lesið síðustu færslu fyrir frekari upplýsingar um það), þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því núna og fæ þess vegna bara stutt frí í staðin. RoRB ævintýrið er líka á enda, svo ég get leyft mér að slaka aðeins á í nokkrar vikur. Maður byrjar kannski að huga að lokaverkefninu á meðan…? Aldrei að vita!
Hef þetta ekki lengra í bili, vildi bara láta heyra í mér og prófa nýja bloggkerfið. Á aðeins eftir að ditta að smáatriðum útlistlega séð, þannig að þið afsakið bullið hérna í hliðardálkinum um sinn. Á eftir að ákveða hvernig það kemur til með að líta út endanlega. En á næstunni mun ég henda hingað inn nýrri tónlistargetraun, svo það er eins gott að vera með á nótunum!
1 Comment
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Jón Helgi Gíslason, 3 September, 2009 @ 01:07
Ég ætla rétt að vona að ég fái líka að sjá Them Crooked Vultures á sviði í desember…hlakka til að heyra nýju tónlistargetraunina!