Netsambandslaus í kreppunni

Amsterdam at nightKomið þið nú öll margblessuð og sæl. Það er orðin drykklöng stund síðan maður henti inn línu hingað á blessað bloggið. Ég held ég hafi bara verið of upptekinn af því að slaka á og hafa það gott í þessu ágætis fríi sem ég fékk heima á íslandi í haust. Hefði svo sem alveg viljað hafa haft meira að gera, en ég dundaði mér jú eitthvað. Hélt t.d. upp á þrítugsafmælið mitt, skellti mér til Reykjavíkur eina helgi og var svo að vinna eitthvað líka. Síldin byrjaði reyndar töluvert seinna en ég hafði vonað, svo ég náði ekki eins miklu af vertíðinni og ég hafði vonað. Náði samt einhverjum 10 vöktum eða svo, sem er betra en ekkert. En nú er ég sem sagt kominn aftur út til Amsterdam og byrjaður í skólanum á nýjan leik.

Það er auðvitað ekki laust við að maður finni herða svolítið að á þessum tímum eins og allir aðrir. Ekki auðvelt að vera á fátæklegum námslánum meðan ástandið er eins og það er, en maður reynir að gera það besta úr því sem maður hefur fyrir framan sig. Maður kemst í gegnum þetta eins og aðrar þrengingar. Það er ferlega fúlt að horfa á hvernig gengi krónunnar veikist og veikist með hverjum deginum en maður verður bara að hugsa jákvætt og horfa fram á við. Er það ekki?

Ég er núna byrjaður að leigja með tveimur nýjum félögum. Hinir peyjarnir, sem ég bjó með á síðasta ári, eru allir farnir aftur heim til Íslands, svo ég varð að finna mér nýja herbergisfélaga. Og það var nú ekki lengi gert. Annar þeirra er Reykvíkingur sem var að byrja í sama námi og ég er í núna í byrjun september. Hinn er Íslendingur að uppruna en hefur búið hér síðan hann var krakki, í einhver 20 ár eða svo. Og saman leigjum við þrír þessa fínu íbúð í vesturhluta Amsterdam. Frábært hverfi sem við erum í og mjög stutt í bæinn. Annað en sveitalífið í norðurhluta Amsterdam eins og í fyrra, sem var reyndar mjög fínt líka, en frekar langt í alla þjónustu og þessháttar.

Netsamband er ekki til staðar á heimilinu eins og er. Það var virkt fyrstu dagana eftir að ég kom aftur út, en stuttu seinna þá hrundi routerinn sem internetþjónustan hafði skaffað okkur og síðan hefur þetta verið eintómt vesen. Ég ætla ekkert að fara út í það í neinum smáatriðum, en þjónustan hjá internetfyrirtækjum hérna er alveg hlægilega léleg. Svo við erum að vesenast í þessu og erum að vonast til að netsamband verði loks komið á fyrir næstu helgi.

Á meðan þarf ég að láta mér duga að kíkja á netkaffi. Það er reyndar ekki langt að fara, bara hérna aðeins neðar í götunni er þetta fínasta netkaffi. Eigandinn er vinalegur múslimi og heitir Mustafa. Þessa stundina er hann einmitt að hlusta á bænirnar sínar í útvarpinu; kyrjandi múslimaprestur flytur bænir og les ritningar úr kóraninum á laugardagseftirmiðdegi, eins og ekkert sé sjálfsagaðara. Og auðvitað er ekkert sjálfsagðara fyrir mann eins og Mustafa.

Jæja, læt þetta duga í bili. Ætla að skella mér í smá hjólreiðatúr á nýja hjólinu sem ég keypti mér í gær. Það er gott veður úti og ferska loftið ákallar mig. Örlítið kalt reyndar, enda kominn vetur og fer að styttast allverulega í jólin. Maður verður bara kominn aftur heim í jólafrí áður en maður veit af!

WordPress Themes