30 ára og úrslitaleikur í afmælisgjöf!
Þá er maður orðinn þrítugur, sem þýðið að spádómurinn rættist ekki (þeir fatta það sem fatta). Ég bjóst alveg eins við því að vakna í morgun, orðinn gráhærður og með staf, en það eru víst einhver á í það ennþá. Þrjátíu ár eru ekki neitt… isss, Einar frændi minn er 40 ára! En orðið “fertugsaldurinn” er orð sem ég vil helst ekki hafa eftir mér (oftar en í þetta eina skipti). Ég man að ég hugsaði það sama þegar ég varð 20 ára, hvað það væri skrýtið að maður væri kominn á þrítugsaldurinn. En mér fannst það bara meira kúl þá. Þetta þykir mér minna kúl, enn sem komið er allavega. Maður lærir kannski að elska þetta með tímanum.
Svo fékk maður þessa líka glæsilegu afmælisgjöf rétt í þessu – Íslendingar komnir í úrslitaleikinn í handboltanum á Ólympíuleikunum. Þvílík og önnur eins snilld! Ansi góð afmælisgjöf það! Það er svona þegar maður gerir ekki miklar væntingar til liðsins, að þá koma þeir manni mest á óvart. Gull yrði auðvitað ólýsanlega gott, en ég er sáttur með að við vinnum bara til verðlauna. Það er stórkostlegur árangur og alveg frábært fyrir menn eins og Óla Stefáns og Sigfús Sigurðsson, sem eru búnir að vera í þessu hvað lengst. Ég samgleðst þeim alveg út í hið óendanlega.
Í afmælisbloggum mínum í gegnum árin hef ég verið vanur að líta aðeins á hvað tölustafir samsvarandi aldurs míns þýða og hvaða merkingu þeir hafa um víða veröld. Hefðin heldur hér áfram.
- Í vestrænni tónfræði eru í það heila 30 dúr og moll tónar.
- Þrjátíuára stríði varði, jú einmitt, í 30 ári.
- Grikkland hefur landnúmerið 30 þegar hringja þarf til landsins.
- Það voru 30 lög á Hvíta Albúminu með Bítlunum.
- Júdas sveik Jesú fyrir 30 silfur peninga samkvæmt því er Biblían segir.
- Og síðast en ekki síst: Spánverjar skoruðu eingöngu 30 mörk gegn 36 mörkum Íslendinga í undanúrslitaleik Ólympíuleikanna 2008!!!
Jæja, skóli í kvöld til klukkan 20:00 og eftir það verður kíkt aðeins í bæinn og fengið sér öl í tilefni dagsins til að fagna þessum tveimur merku áföngum.
Áfram Ísland á sunnudaginn!