Heim á leið

Jæja, þá eru ekki nema rétt rúmir tveir sólarhringar þar til maður fer að skríða í loftið frá Eindhoven flugvelli. Já, Eindhoven. Meira vesenið að geta ekki flogið beint frá Amsterdam, sem ég hefði svo sem getað gert hefði ég beðið og tekið sénsinn á Icelandair. En mér fannst betra að gera þetta tímanlega og taka Iceland Express pakkann á þetta, því hann var ódýrari kosturinn þá. Ekki að það skipti neitt miklu máli svo sem… Express er í eigu Icelandair núna svo það er lítil sem engin samkeppni á þessum markaði lengur, svo Icelandair geta sprengt þessi verð upp úr öllu valdi án teljandi áhyggja. Sniðugt að kaupa svo upp alla samkeppnisaðila til að útrýma allri sanngirni á verðlagi. Andskotans ástand! En maður þegir auðvitað bara og lætur vaða yfir sig eins og vanalega.

En mikil skelfingar ósköp verður nú gott að komast heim maður! Þetta er búin að vera löng bið, alveg síðan í janúar. En maður hefur haft mikið meira að gera eftir áramót heldur en fyrir þau, þannig að tíminn hefur liðið mun hraðar. Og nú tekur við 2ja vikna sumarfrí sem verður nýtt til hins ítrasta. Svo ítarlega mun ég nýta mér það að ég tek mér meira að segja 3 daga aukalega í frí, svo ég þurfi nú ekki að stinga af á miðri Þjóðhátíð. Hef fram til miðvikudagsins 6. ágúst að jafna mig eftir hátíðina og koma mér aftur út og í skólann. Þá tekur við lokaspretturinn í náminu sem verður ansi annasamur.

Annars er bara alveg fínt að frétta. Ég nenni samt ekki að telja upp hvað það er sem er að frétta, svo þið verðið bara að trúa mér þegar ég segi að það sé “fínt” að frétta. Læt það nægja að sinni.

Það var skítt hvernig fór fyrir Hollendingum í Evrópukeppninni. En þeir duttu úr keppni á móti sprækum Rússum sem þjálfaðir eru af Guus Hiddink, sem er auðvitað goðsögn hérna í Hollandi. Svo þetta var ekki eins slæmt áfall og, segjum, ef þeir hefðu dottið út á móti Þýskalandi. Það hefði verið óbærilegt fyrir landann hér.

Jæja, ég nenni þessu ekki. Ætla að slútta þessu á nýju lagi hérna. Þetta er af nýrri plötu með meistara Beck og heitir Youthless. Grúúúúví sjitt!

Sjáumst!

WordPress Themes