Euro 2008 fever!

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Evrópukeppnin í knattspyrnu fer fram um þessar mundir, hvað þá ef þú býrð í Hollandi. Þú þarft væntanlega að vera í einangrun í fangelsi til að láta þetta framhjá þér fara hér í landi. Hér er allt undirlagt knattspyrnu, hvort sem það er í fjölmiðlum, verslunum, opinberum stofnunum eða heimilum. Það er alls staðar skreytt í tilefni mótsins, utan á öðru hverju heimahúsi hanga appelsínugulir fánar og veifur, strætin í miðborginni iða af appelsínugulum skreytingum, verslanir selja appelsínugulan fatnað í tonnavís, matvæli og aðrar neysluvörur eru settar í appelsínugular umbúðir og svo mætti lengi telja. Ég er viss um að ef tekin væri loftmynd af Evrópu utan úr geimnum, þá væri Holland appelsínugult á litinn. Í þessum töluðu orðum er ég einmitt að borða appelsínugulan kleinuhring og drekka mjólk með… úr appelsínugulri fernu!

Ég horfði á leikinn í gær, þar sem Hollendingar fóru nokkuð létt með Ítali, unnu þá 3-0. Ég spjallaði við nágranna mína í hálfleik, aldraða konu og son hennar (sem bæði voru að sjálfsögðu í appelsínugulum klæðum). Þau voru frekar hissa yfir þessu, enda eru Hollendingar ekkert endilega að gera neinar ofsavæntingar, eru frekar raunsærri þegar kemur að stórmótum í íþróttum heldur en við Íslendingar t.d.

En það var auðvitað hamingjan ein hvert sem maður leit eftir sigurinn í gær. Við kíktum aðeins á hverfisbarinn eftir leikinn, þar sem enn var fólk að fagna, en samt frekar rólegt svona heilt yfir. Enda var nú bara mánudagskvöld. Það verður eflaust meira fjör yfir þessu á föstudaginn, þegar Hollendingar mæta Frökkum. Þá er ætlunin að kíkja niður í bæ og horfa á leikinn á einhverju torginu þar í hópi fjölmennis. Og ef sá leikur vinnst, þá má sko alveg gera ráð fyrir alvöru fjöri!

En já, stemningin fyrir þessu móti hérna er alveg ótrúlega skemmtileg og magnað að fá að upplifa þetta. Þetta væri auðvitað skemmtilegra ef maður skildi tungumálið, enda eru nánast allar sjónvarpsstöðvar hérna með einhverskonar þætti sem tengjast keppninni á einn eða annan hátt, en það er auðvitað allt saman á hollensku. Maður finnur samt fyrir þessu hvert sem maður fer og það taka allir þátt í stemningunni, hvort sem það eru háaldraðar kerlingar, kornungir villingar eða eitthvað þar á milli, þá hafa allir hér sama áhugamálið þessa dagana: Fótbolta. Svona á þetta að vera!

Áfram Holland!

Lausnir við tónlistargetraun #3

Jæja, þá hafa mér borist ágiskanir frá 7 þáttakendum í tónlistargetrauninni, sem er nokkuð góð þáttaka bara. Ég get ekki verið annað en sáttur við það. Það var líka gaman að sjá að fólk var allavega að giska þótt það væri ekki endilega með allt saman á hreinu.

Keppendur voru þessir:

  • Ástþór
  • Jón Helgi
  • Sindri Freyr
  • Stefán Barga
  • Sunna
  • Tóta
  • Viktor Smári

Og lögin voru sem sagt þessi:

#1. Lenny Kravitz – Rock and Roll Is Dead
Þetta höfðu allir rétt nema Tóta, sem giskaði á hljómsveitina Deep Purple (engin ágiskun á nafn lagsins hjá henni).

#2. Space Hog – In The Meantime
Gamall og góður 90s smellur, eitt af fjölmörgum einslagsundrum frá þessum tíma. Sindri Freyr var sá eini sem fékk 3 stig fyrir þetta. Ástþór vissi hvað lagið hét og Stebbi var með hljómsveitina, en hann giskaði á að lagið héti “In the Moment”. Ekki fráleidd ágiskun, Stebbi, en ég gat því miður ekki gefið þér rétt fyrir þetta. Aðrir skiluðu auðu á þetta lag.

#3. Boston – More Than a Feeling
Þetta voru allir með á hreinu, enda auðþekkjanlegt og klassískt lag.

#4. Otis Reading – Dock of the Bay
Þessu svöruðu allir rétt nema Viktor Smári og Jón Helgi. Viktor giskaði nokkuð skemmtilega á “Flautulag” meðan Jón Helgi sleppti því alfarið að giska.

#5. Manic Street Preachers – If You Tolerate This Your Children Will Be Next
Þetta lag flæktist ekki fyrir neinum. Allir með þetta rétt.

#6. Dexy’s Midnight Runners – Come On Eilene
Fimm af sjö þáttakendum voru með þetta alveg á kristaltæru. Jón Helgi og Sunna slepptu því hins vegar bæði að giska.

#7. Pelican – Jenny Darling
Þetta var sennilega erfiðasta lagið í þessari getraun, enda hafði ég þetta með af ásettu ráði til að gera ykkur svolítið erfiðara fyrir. Pétur Kristjáns og félagar í Pelican fluttur lagið Jenny Darling. Stebbi var einn með 3 stig fyrir þetta. Ástþór fékk 1 stig fyrir að geta nafnið á laginu, en var hins vegar ekki með hljómsveitina á hreinu. Tótu fannst þetta hljóma eins og eitthvað með Monty Python og Sindri ákvað að giska út í loftið og skaut á “Dancing in the Moonlight” með Thin Lizzy. Aðrir svöruðu engu.

#8. Toto – Hold the Line
Viktor, Sunna og Stebbi fengu öll 3 stig fyrir þetta. Tóta fékk stig fyrir að geta hljómsveitina rétt, en eins og Nonni, Ástþór og Sindri Freyr, giskaði hún á að lagið héti “Love Isn’t Always on Time”, sem er vissulega lína úr laginu, en ekki titill þess. Nonni og Sindri héldu svo að þetta væri hljósveitin Foreigner, meðan Ástþór giskaði á Boston.

#9. Dire Straits – Walk of Life
Tóta, Jón, Viktor, Sindri og Stebbi fengu fyrir þetta 3 stig. Ástþór fékk 1, en hann giskaði á að lagið héti “Walk All Night”. Close, but no cigar, Ástþór. Sunna gaf skít í þetta og svaraði “Eitthvað suðurríkja drasl!”. Ekki aldeilis, Sunna mín.

#10. Tweety – Gott Mál
Eins og hitt íslenska lagið í þessari getraun, þá var þetta í erfiðari kantinum. Stebbi og Tóta voru með þetta alveg hárrétt, meðan Ástþór var með hljómsveitina á hreinu, en giskaði á lagið “Krösj (eða einhver enskusletta)”. Ekki vitlaus ágiskun svo sem, þar sem er farið mjög frjálslega með enskuslettur í þessu lagi. Annars giskuðu Sindri og Sunna á hljómsveitina Todmobile; Sunna svaraði engu lagi meðan Sindri sagði Stúlkan. Viktor smári hélt einnig að lagið héti Stúlkan, en giskaði nokkuð furðulega á að Sykurmolarnir væru flytjendur. Jón Helgi giskaði ekki á þetta.

Stigin féllu sem hér segir:

  • 1. Stefán Braga – 28
  • 2. Sindri Freyr – 21
  • 3. Tóta – 19
  • 4. Ástþór – 19 (Jafnmörk stig og Tóta, en skilaði svörum inn seinna)
  • 5. Viktor Smári – 18
  • 6. Sunna – 15
  • 7. Jón Helgi – 12

Og þar hafið þið það. Stefán Bragason kom óvæntur inn í keppnina á lokasprettinum og svaraði öllu rétt, nema hann var með nafnið á einu laginu vitlaust og var því aðeins hársbreidd frá fullu húsi stiga. Til hamingju með sigurinn, Stebbi! Þú hefur eignað þér montréttinn fram að næstu getraun.

WordPress Themes