Manchester United Evrópumeistarar 2008!

Enn og aftur, til hamingju Man Utd aðdáendur!

Yndislegt!

Tónlistargetraun #3

Ég ætti nú að vera læra undir próf eins og er, en auðvitað finnur maður sér eitthvað annað og “betra” að gera undir slíkum kringumstæðum. Þannig að ég ákvað að smella saman eins og einni tónlistargetraun, svona aðeins til að endurvekja þennan fína leik. Það er komið rétt rúmlega ár síðan ég var síðast með tónlistargetraun, eða þann 11. maí í fyrra. Þannig að það er löngu kominn tími á nýja getraun.

Það var ágætis þátttaka síðast og ég vona að hún verði allavega jafngóð núna, ef ekki betri. Því fleiri sem taka þátt, því skemmtilegri verður leikurinn. Og ekkert vera hafa áhyggjur af því ef þið séuð ekki með þetta alveg 100% á hreinu. Sendið mér bara svörin við því sem þið vitið eða haldið að þið vitið, eða giskið bara á það sem þið vitið ekki eða eruð í vafa með. Mér er skítsama hvernig svörin líta út, svo lengi sem ég fái svör frá sem flestum!

Jæja, snúum okkur þá að leiknum. Getraunin samanstendur af brotum úr 10 lögum sem ég hef klippt saman. Í brotunum eru engir textar, aðeins laglínur, sóló og melódíur sem ættu að kveikja á perunni hjá ykkur. Ég held að þessi getraun sé kannski í við erfiðari en síðast, en þó veit ég ekki. Síðasta getraun fannst mér (og ykkur sem tókuð þátt) aðeins og auðveld, svo ég lofaði því að sú næsta yrði aðeins strembnari. En þetta er alls ekki of erfitt, það eru lög þarna sem allir eiga að þekkja og kannast við og svo kannski 2-3 lög sem ættu að flækjast fyrir sumum.

Stigagjöfinni er þannig háttað:

Réttur flytjandi = 1 stig
Rétt nafn á lagi = 1 stig
Réttur flytjandi og rétt nafn á lagi = 3 stig

Mest er hægt að fá 30 stig í heild fyrir að giska rétt á alla flytjendur og heiti allra laga.

Getraunina má nálgast með því að smella hér eða einfaldlega smella á play hér fyrir neðan.

Svör berist svo til mín á MSN eða í gegnum e-mail (hvoru tveggja er andrihugo[hjá]hotmail.com). Vinsamlegast svarið ekki í comentakerfið!

Glory, Glory!!

Mikið ofbosðlega var ljúft að sjá Manchester United hampa enska úrvalsdeildartitlinum í gær! Ég óska Man Utd aðdáendum nær og fjær til hamingju með titilinn og fagna þessu hér með léttu lagi og nokkrum myndum.


Svo er það bara Moskva næst!

Sumarið lætur ekki bíða eftir sér!

Geri ég kannski of mikið af því að tala um veðrið hérna? Mér finnst ég minnast á veðrið í hverju einasta bloggi, en það er bara ekki annað hægt þegar veðrið er búið að vera eins og það hefur verið hérna síðustu daga. Um leið og maímánuður gekk í garð þá kom þessi líka bongóblíða, sem sér ekkert fyrir endann á eins og sjá má á veðurspánni á myndinni hérna fyrir ofan. Þessi blíða á bara að halda áfram eins langt og verðurspáin nær. Ekki amaleg byrjun á sumrinu skal ég segja ykkur!

En það er ekki bara veðrið sem leikur við mann þessa dagana. Lífið er bara almennt í góðum gír og alveg ansi gaman að vera til þessa stundina. Í síðustu viku var Drottningardagurinn haldinn hátíðlegur. Drottningardagurinn er hálfgerður þjóðhátíðardagur Hollendinga, þar sem allir klæða sig í appelsínugul föt, drekka bjór og láta eins og vitleysingar í tvo daga. Allar götur eru troðnar af stuði, á sýkjunum sigla bátar, þandir partýþyrstu fólki og fólk hangir bókstaflega út um glugga af öldrykkju. Við Íslendingarnir kíktum einmitt í húsbátapartý þennan ágæta dag, skólafélagi okkar þekkir annan skólafélaga sem á húsbát og þar var slegið upp dúndrandi partýstuði. Það var verulega gaman að sötra bjór í bátnum við sýkið og fylgjast með allri stemningunni í partýbátunum sem sigldu framhjá. Það var gaman að fá að upplifa þetta allavega, svo sannarlega konungleg skemmtun!

Skólinn er svo bara skólinn, eins og áður. Erum á fullu að taka upp hljómsveitir núna og fjör. Ég og Viktor tókum upp þrælfínt jazz-band í síðustu viku og erum svo að fara taka upp oldies rock and roll band á föstudaginn, með kontrabassa og öllu tilheyrandi. Það verður fjandi spennandi.

Lifið heil… og gleðilegt sumar!

WordPress Themes