Af hampreykingum
Eins og þú sjálfsagt veist þá er ýmislegt leyfilegt í Hollandi sem ekki leyfist í flestum öðrum vestrænum heimshornum. Og þar ber hæst að nefna að hér er leyfilegt að neita og selja svokallaðra vægra fíkniefna, eða “soft drugs” eins og enskumælandi menn myndu segja. Í þann flokk falla helst hampvörur annars vegar, eins og hass og gras, og sveppir hins vegar. Lyktin af hampreyk er mjög einkennandi og maður þekkir hana um leið og maður finnur vægasta keim af henni. Og þessi lykt umlykur alla Amsterdamborg, þá sér í lagi miðbæinn, þar sem annar hver bar er hassbar og fólk reykir þetta eins og sígarettur á götum úti.
Sjálfum finnst mér þessi lykt ekkert sérstaklega góð. Sumir eru hrifnir af henni, jafnvel fólk sem ekki neytir hampvara en finnst lyktin bara góð, en svo er ekki með sjálfan mig. Ég get alveg umborið lyktina en ég er ekkert sérlega hrifinn af henni. Þess vegna fer það svolítið í taugarnar á mér þegar vissir nemendur í mínum bekk mæta í skólann og eru gjörsamlega angandi af hampreyk, svo mikið að það hefur áhrif á einbeitningu annarra nemanda í kring um þá. Mann svíður nánast í augun af þessu þegar verst lætur! Það eru líka sumir nemendur hérna sem komu greinilega til Amsterdam í þennan skóla til þess helst að geta reykt hampinn af frjálsum vilja. Stundum heldur maður jafnvel að skólinn sé ekkert meira en bara afsökun til að geta flutt til Amsterdam og búið í eitt ár í paradís hampreykingamannsins. Það þykir mér ansi dýr afsökun!
Þessi lykt er yfirleitt umborin af skólayfirvöldunum í mínum skóla, ég veit bara um eitt atvik þar sem einn nemandi var tekinn á teppið fyrir þetta. Það er líka greinilegt að sumir eru að mæta undir áhrifum hampreykinga í skólann. Ég hef meira að segja orðið vitni að því að nemendur fari út fyrir skólalóðina til að kveikja sér í eins og einni jónu í frímínútum (það má neflinlega ekki neita þessara efna á skólalóðinni). Það finnst mér ansi aumt spaug. Til hvers í fjandanum að vera mæta í tíma ef maður er bólufreðinn? Hvað græða menn á því?
En það sem mig langar að vita er hvað yrði sagt ef maður mætti í skólann angandi af áfengi? Ef maður væri bara eins og nýstiginn upp úr vodkabaði eða einhverri viskítunnu? Hvað ætli fólkið í kringum mann myndi segja þá? Ég efast um að það yrði umborið jafn vel og hamplyktin. Hvort þykir ykkur skárra að mæta nemanda sem er kengskakkur í tíma að blindfullur? Það myndi engum detta það til hugar að mæta ölvaður í tíma um miðjan dag. En að mætta freðinn? Það er allt annað mál! Djöfulsins vitleysa!
Nei, ég ætla ekki að fara afsaka þetta bloggleysi í mér með orðum um að ég sé búinn að vera allt of upptekinn til að blogga eða að það sé ekkert búið að gerast markvert hjá mér sem vert sé að blogga um. Þvert á móti hefur fjölmargt dregið á mína daga frá því þið heyrðuð frá mér síðast og þótt það sé búið að vera nóg á minni könnu á flestum sviðum, þá hefur mér nú alveg gefist tími hér og þar til að skrifa niður eins og eitt blogg og henda því hingað inn. En ég hef bara ekki nennt því. Ég nenni bara ekki að blogga nema ég sé í stuði til þess… en nú er ég í stuði!




