Sunnudagseftirmiðdagur

Löngu tímabærar myndir

Andrarnir á DJ kvöldi í desemberÞá er ég búinn að henda inn einum 387 myndum inn á myndasvæðið mitt. Þetta eru myndir allt frá því í desember, bæði hérna úti í Amsterdam og myndir frá jólafríinu heima í Eyjum. Þetta skiptist niður í nokkra undirflokka. Amsterdam-myndunum skipti ég bara upp í mánuði og þar er sem sagt að finna myndir frá desember-, janúar- og febrúarmánuði. Myndirnar úr jólafríinu skiptast svo í Litlujól VKB, ferðina upp á Helgafell með VKB merkið á gamlársdag, gamlárskvöld og svo bara Ýmsar myndir úr jólafríinu.

Annars er bara þetta fína að frétta skal ég segja ykkur. Skólinn er bara samur við sig og nú er verulega farið að bæta í verkefnaálagið hjá okkur. Dagatalið hjá manni er alltaf að fyllast meira og meira, skilafrestur fyrir þetta og hitt, stúdíótímar hér og þar og svo eru próf hjá okkur á 6 vikna fresti. Við erum búin að taka 2 stór próf hingað til, sem ég náði báðum, því fyrra með 88% og seinna með 89%. Svo ég er nokkuð sáttur við mitt enn sem komið er.

Hljómsveitarupptökurnar hjá okkur eru síðan loksins byrjaðar. Ég og Andri Eyvinds tókum upp okkar fyrstu hljómsveit í dag og í gær, sem gekk bara svona asskoti vel. Hljómsveitin heitir Red Over Black og er hollensk. Þrælfínt band og þrælfínir gaurar alveg. Spila melódískt og poppað rokk. Við fengum sem sagt 6 klukkustundir í stúdíóinu til að stilla öllu draslinu upp og taka upp eitt lag með þeim. Svolítið þröngur tímarammi en það hafðist alveg. Svo fáum við sitthvora 3 klukkutímana til að hljóðblanda lagið og snyrta það aðeins til áður en við skilum því inn sem verkefni. Verður spennandi að sjá hvernig það kemur út.

Ég, Andri Eyvinds og Viktor erum svo að fara til London á föstudaginn. Ætlum að taka helgarferð á þetta, heimsækja Ástþór og sjá The Mars Volta á tónleikum. Ég kom síðast til London í maí 2005 en stoppaði svo stutt að ég náði varla að gera neitt annað en kíkja á tónleikana með Beck sem ég fór til að sjá. Hafði varla tíma til að pissa. Þannig að vonandi nær maður að gera eitthvað meira núna og skoða sig aðeins um eins og alvöru túristi.

Það held ég nú!

Ekki lengur alveg snjólaust

SnjórUndanfarna daga hef ég þakkað mínum sæla fyrir það að vera ekki heima á Eyjunni björtu. Fannfergi er ekki í uppáhaldi hjá mér, hvað þá þegar það nær því magni að það hamlar almennar samgöngur innanbæjar í Vestmannaeyjum! En svona snjór hefur bara ekki sést í Eyjum í mörg ár, bara ekki síðan ég var krakki. Mér fannst þetta voðalega spennandi þegar ég var peyji, enda hafði ég ekki vit á öðru. Og mig grunar nú að ég hefði haft lúmskt gaman af þessu í gær og í fyrradag. En það hefði verið stutt gaman; spennandi meðan þetta er að falla og meðan mesta klikkunin stendur yfir. En svo fer þetta að hlána og frysta aftur og skaflarnir fara að hlaðast upp og maður á erfitt með að komast milli staða án þess að eiga á hættu að öklabrjóta sig. En ég þarf svo sem ekkert að segja ykkur um þetta, ykkur sem búið á eyjunni… eða bara á Íslandi yfir höfuð. Þetta er allavega ekki fyrir mig. Ég er enginn aðdáandi snjós. Þvert á móti!

En hér í Amsterdam hafði ekkert snjóað, þangað til í dag. Ég opnaði stofugluggann í dag, fékk mér sæti og horfði út um gluggann þar sem gekk á með haglélum, slyddu og snjókomu til skiptis í einhvern tíma. Hugsaði svo með mér að það færi nú aldrei svo að ég yrði svo heppinn að upplifa snjólausan vetur hérna úti. En þetta var stutt og það situr eiginlega ekkert eftir af þessu á jörðinni. Sem er gott… vona bara að það komi ekki mikið meira af þessu.

En að öðru. Ég lét loksins verða að því að kaupa mér kort í ræktina í dag. Er búinn að láta það sitja á hakanum í allt of langan tíma. Við búum nánast við hliðina á líkamsræktarstöðinni The Temple, erum ekki nema kannski 2-3 mínútur að hjóla þangað. Svo maður hefði auðvitað löngu átt að vera búinn að kaupa sér kort, enda hefur þetta hreyfingarleysi alveg verið að fara með mig. Hinir peyjarnir voru reyndar löngu búnir að versla sér aðgang að Musterinu en letin í mér hélt mér heljartökum þangað til í dag. Þar sem ég var staddur í ræktinni í dag varð mér hugsað til myndbands frá YouTube fígúrunni Some Grey Bloke, sem ég held mikið upp á:

Hafið það gott og passið að borða ekki gula snjóinn!

WordPress Themes