Topp 10 plötur ársins 2007

Ég hef aldrei verið mikið fyrir að gera lista, finnst leiðinlegt að negla niður svona ákveðna hluti án fyrirvara um breytingar. En ég fékk þá áskorun um að gera topp 10 lista yfir bestu plötur ársins og verð eiginlega að verða við þeirri bón. Hér eru því bestu plötur ársins að mínu mati, af þeim plötum sem ég komst yfir á árinu. Eflaust eru fjölmargar fínar plötur sem ég hlustaði ekki á á árinu, enda ekki hægt að ætlast til þess að maður komist yfir að hlusta á alla flóruna.

#10 – Feist – The Reminder

Leslie Feist, eða Feist eins og hún kallar sig bara, er kanadísk tónlistar- og söngkona. Ég hafði ekkert heyrt um þessa hnátu fyrr en ég sá hana spila hjá Jay Leno einhvern tímann á árinu. Hún hreif mig það mikið að ég ákvað að kanna tónlist hennar betur og kom hún mér alveg skemmtilega á óvart. Fjölbreytt og skemmtileg poppplata sem ég mæli með að fólki kynni sér betur.

Lög sem standa upp úr: My Moon My Man, Sea Lion Woman og The Limit to Your Love

#9 – Arctic Monkeys – Favourite Worst Nightmare

Sjálfstætt framhald af fyrri plötu sveitarinnar. Ég bjóst í rauninni við betri plötu og varð örlítið fyrir vonbrigðum eftir fyrstu hlustun. En því meira sem maður hlustar á plötuna, því meira vinnur hún á, eins og margar góðar plötur eiga það til að gera. Blátt áfram skemmtirokk af bestu gerð og ég held að þessir drengir eigi mikið inni ennþá. Það verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.

Lög sem standa upp úr: Brainstorm, Teddy Picker og D Is for Dangerous

#8 – Modest Mouse – We Were Dead Before the Ship Even Sank

Ég hef lengi verið hrifinn af Modest Mouse. En mér hefur oft fundist þeim vanta jafnvægi á plötum sínum; þeir hafa komið með marga frábæra slagara inn á milli annarra síðri laga og hafa plöturnar þeirra oft verið óheilsteyptar og svolítið stefnulausar fyrir vikið. En á síðustu tveimur plötum þeirra hafa þeir sýnt miklar framfarir á þessu sviði, greinilegt að þeir hafa farið mikið fram í tónlistarlegum þroska og hafa náð að skapa skemmtilega heildarmynd sem þeir geta réttilega kallað sína eigin. Á þessari plötu halda þeir áfram þar sem frá var horfið á plötunni Good News For People Who Love Bad News frá árinu 2004 og afraksturinn er virkilega ánægjulegur.

Lög sem standa upp úr: Missed the Boat, We’ve Got Everything og Dashboard

#7 – !!! – Myth Takes

Maður veit eiginlega ekki hvað maður á að segja um hljómsveitina !!! (oftast borið fram CHK-CHK-CHK), eða hvernig maður á að lýsa tónlist þeirra. Þeir taka áhrif úr bókstaflega öllum áttum og blanda því saman í fáránlega kraftmikla grúv- og fönkveislu. Niðurstaðan er ómótstæðileg partýmússík, þó svo að á köflum sé eiginlega of mikið að gerast hjá þeim í einu. Engu að síður, alveg frábær plata frá einstakri hljómsveit sem hefur getið sér orð sem ein albesta tónleikasveit heims þessa dagana. Ég hefði viljað vera á landinu þegar þeir spiluðu á Airwaves fyrr á þessu ári, jafnvel þó það hefði bara verið til að sjá þessa hljómsveit á sviði.

Lög sem standa upp úr: A New Name, Yadnus, Sweet Life og Bend Over Beethoven

#6 – Travis – The Boy With No Name

Eftir plötuna 12 Memories frá 2003 hélt maður bara að Travis hefðu lagt upp laupana. Platan hlaut enga sérstaka dóma og mistókst svolítið að fylgja eftir The Invisible Band frá 2001, sem var alveg stórkostleg plata. En svo komu þeir öllum á óvart á þessu ári með þessari stórfínu plötu, sem mér finnst persónulega ekkert mikið síðri en The Invisible Band. Vinaleg og einstaklega þægileg popp/rokk mússík sem ætti að gleðja hverja sál.

Lög sem standa upp úr: Selfish Jean, Battleship og My Eyes

#5 – Chromeo – Fancy Footwork

Þessa hljómsveit rakst á fyrir tilviljun á einhverju spjallborði stuttu áður en ég flutti út til Amsterdam í haust. Platan hreif mig það mikið að ég hlustaði á lítið annað þarna úti fyrstu vikurnar og veðrur þetta fyrir vikið ævinlega “Amsterdam platan” í mínum huga, ein af þessum plötum sem maður tengir við ákveðið tímabil eða uppákomur í lífi sínu. En platan er annars virkilega skemmtileg. Chromeo er kanadískur dúett sem spilar rafræna poppmússík með 80s syntha- og fönk ívafi. Ég mæli sterklega með þessu fyrir næsta partý!

Lög sem standa upp úr: Bonafied Lovin’ (Though Guys) og Opening Up (Ce Soir on Danse)

#4 – The Shins – Wincing the Night Away

Önnur “tímabils plata” fyrir mig, enda hlustaði ég látlaust á þessa plötu á loðnuvertíðinni á Vinnslustöðinni á þessu ári. Eins og Modest Mouse, þá hefur mér alltaf þótt The Shins vera gríðarlega efnileg hljómsveit, en plötur þeirra hafa mér hins vegar hingað til alltaf þótt vera voðalega misjafnar og óstöðugar; það er að segja þar til kom að þessari plötu. Þessi plata er algjört gull frá upphafi til enda og finnst mér hljómsveitin loksins hafa uppfyllt hæfileika sína með frábærum tónsmíðum og grípandi laglínum.

Lög sem standa upp úr: Phantom Limb, Turn On Me, Red Rabbits og Girl Sailor

#3 – Radiohead – In Rainbows

Maður var orðinn ansi skeptískur á nýju Radiohead plötuna. Eftir allt sem á undan hafði gengið, frestanir á frestanir ofan og fréttir af ósætti meðal hljómsveitarmeðlima um stefnuna sem platan átti að taka, tókst þeim að reiða fram enn eitt meistaraverkið. Ég segi ekki að þessi plata toppi eitt eða neitt sem þeir hafa gert áður – enda virðast þeir alltaf ná að brydda upp á einhverju nýju fyrir hverja plötu – en hún er a.m.k. jafngóð og flest annað sem þeir hafa gert hingað til.

Lög sem standa upp úr: All I Need, House of Cards, 15 Steps og Jigsaw Falling Into Place

#2 – Queens of the Stone Age – Era Vulgaris

Eins og James Hetfield og var konungur gítar riffanna þegar hann var upp á sitt besta, þá er Josh Homme kóngurinn í dag. Og það sem meira er, er að Hr. Homme tekst að gera nokkurn veginn nákvæmlega það sem honum sýnist og heilla markaðinn upp úr skónum á sama tíma og hann er trúr sinni eigin stefnu og hugmyndum. Fágætir snillingar hér á ferð sem virðast ekki geta stigið feilspor í einu eða neinu sem þeir taka sér fyrir hendur. Platan sjálf er kannski ekki það besta sem hefur komið frá sveitinni, enda erfitt að toppa alla snilldina sem á undan hefur komið. En Era Vulgaris olli mér allavega engum vonbrigðum.

Lög sem standa upp úr: Misfit Love, Turning on the Screw, 3s & 7s, Sick Sick Sick, og I’m Designer

#1 – Kings of Leon – Because of the Times

Plata ársins, árið 2007, er að mínu mati Because of the Times með hljómsveitinni Kins of Leon. Kannski er ég hlutdrægur, þar sem þessi hljómsveit hefur verið í gríðarlegu uppáhaldi hjá mér síðan þeir stigu fyrst fram á sjónarsviðið, en ég held með fullri sannfæringu að það geti ekki nokkur einasti tónlistarunnandi litið fram hjá þessari plötu í valinu um bestu plötur ársins. Þetta er þriðja plata sveitarinnar og með hverri plötu hafa þeir sýnt ótrúlegar framfarir, hvort sem það er í hljóðfæraleik, lagasmíðum, stílsköpun eða einhverju öðru. Þeim hefur farið fram á öllum sviðum frá plötu til plötu og er engin undantekning á því hér. Það verður virkilega gaman að sjá hvort þeim takist að halda áfram á sömu braut, því ef svo er þá erum við að tala um að næsta plata þeirra verði algjört meistaraverk!

Lög sem standa upp úr: My Party, Knocked Up, Charmer, Ragoo og Fans

Eins og sjá má hlustaði ég voðalega lítið á íslenska tónlist þetta árið, en það sem stóð upp úr á þeim vettvangi voru tvær plötur í sama geira; annars vegar platan Fnykur með Samúeli Jóni Samúelssyni og hins vegar platan Shake It Good með Jagúar, þar sem Samúel spilar auðvitað stórt hlutverk líka. Þannig að tónlistarmaður ársins á Íslandi að mínu mati er án vafa Samúel Jón Samúelsson.

En hvað segið þið? Sammála um eitthvað af þessu? Ósammála? Endilega deilið skoðunum ykkar með mér og öðrum lesendum.

Gleðileg jól!

Gleðileg jól!

Á heimleið í jólafrí

Já, þá eru ekki nema rúmir 3 tímar í flugið. Fyrst fljúgum við til London, gistum þar í eina nótt og skundum svo yfir til Íslands í fyrramálið. Verðum lentir í Keflavík um hálfþrjúleitið og brunum þaðan til Þorlákshafnar og tökum seinni Herjólf beinustu leið heim til Eyja. Ef það verður ófært þá verður mér að mæta sko!

Let It Snow með Fret Killer

Fallandi snjórÉg lofaði ykkur fleiri jólalögum og hér kemur eitt í YouTube formi. Þetta er gaur sem kallar sig Fret Killer og er einn af mínum uppáhalds YouTube tónlistar-mönnum. Algjör snillingur á gítarinn en það veit enginn hver þetta er í rauninni. Það hafa ýmsar getgátur komið upp um það hver sé þarna á ferð, en hann fer alltaf huldu höfði í myndböndum sínum og lætur gítarinn einfaldlega tala sínu máli, auk söngsins auðvitað í þeim lögum sem það á við.

Allavega, hér er lagið Let It Snow með Fret Killer.

(Það virðist ekki virka að pósta þessu vídeói á bloggið hjá mér, svo ég býð ykkur bara upp á beinan tengil á þetta í staðinn.)

Annnars mæli ég með að þið skoðið fleiri myndbönd á YouTube síðunni hjá Fret Killer. Hann er með nokkur jólalög þarna, fyrir þá sem vilja koma sér í jólaskapið með ljúfum kassagítartónum. En fyrir utan jólalögin er hann líka með fleiri mjög skemmtileg vídeó, eins og t.d. The Etowah Shuffle sem er í sérstöku uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Gott stöff!

PS: Ný könnun!

356 nýjar myndir

Þá er ég loksins búinn að klippa til og henda inn myndum frá október- og nóvembermánuði inn á myndasvæðið mitt. Ég ætla mér nú alltaf að gera þetta jafnóðum, en einhvernveginn verður þetta alltaf undir á forgangslistanum mínum. En ég tók góða törn á þetta núna og þarf ég allavega ekki að hafa áhyggjur af þessu næsta mánuðinn eða svo!

Under the Bridge

Án vafa einhver albesta útgáfa sem ég hef heyrt af þessu lagi.

Gleðilegan jólamánuð

SinterklaasJújú, mikið rétt, jólin eru á næsta leiti, hvorki meira né minna! Ég held ég hafi bara aldrei upplifað jafn fljóttlíðandi ár eins og þetta. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að það sé ekki liðið nema tæpt ár síðan ég lá flatmagandi í Kaliforníusólinni síðastliðinn aðfangadag. Það voru vissulega óvenjuleg jólin hjá mér í fyrra, í sólskini og 25° hita. Það var allavega mjög sérstök upplifun að hlusta á jólalögin í svoleiðis umhverfi. En á þessu ári verð ég heima í Vestmannaeyjum um jólin. Nánasta fjölskylda mín verður reyndar í Bandaríkjunum, en mér er boðið í mat og matarboð, bæði á aðfangadag og jóladag, til fjölskyldu og vina. Þannig að ég kem allavega ekki til með að sitja einn yfir jólasteikinni eins og ég var farinn að leiða hugann að.

Jólin hérna í Hollandi byrja snemma. Sinterklas (sá hinn sami og ameríski jólasveinninn, Santa Claus, er byggður á) kemur í bæinn í lok nóvember og með honum fylgja nokkrir negrasveinar, hjálparar hans, sem bera einkennilega allir sama nafnið: Zwarte Piet (Svarti Pétur). En Svarti Pétur, eða sá sem tekur að sér hlutverk Svarta Péturs skulum við segja, má aldrei vera þeldökkur maður í raun, því slíkt þykir falla undir fordóma gagnvart hörundsdökku fólki. Þess vegna eru Svartir Pétrar ávalt leiknir af hvítum mönnum sem skella skósvertu í andlitið á sér, setja á sig rauðan varalit og klæða sig í litskrúðuga búninga samkvæmt fornum, spænsku sið (Sinterklaas og hjálparar hans eru neflinlega, samkvæmt þjóðsögunni, ættaðir frá Spáni og búa þar árið um kring, þar til þeir sigla yfir til Hollands fyrir jólin). Það er auðvitað enginn rasismi falinn í slíkri múnderingu! Síðan fá börnin gjafir og halda upp á sín “Sinterklaas” jól þann 5. desember. Hin eiginlegu jól eru svo auðvitað líka haldin á hefðbundnum tíma, þann 25. desember, þannig að Hollendingar fá eiginlega tvöfaldan skammt af þessu á hverju ári.

Og þar sem þetta byrjar svona snemma þá fyrirgefur maður alveg forskotið sem auglýsendur taka á jólin hérna megin Atlantshafsins, annað en á Íslandi þar sem það jaðrar við hallæri hversu snemma búðir byrja að auglýsa jólin og jólalög fara að heyrast á öldum ljósvakans.

En hvað sem því líður, þá er ég allavega löngu kominn í jólaskap. Ég færi þó aldrei að spila jólalög eða skreyta hjá mér fyrr en 1. desember. En þar sem sú dagsetning er nú runnin upp er jólalagaplaylistinn minn farinn að rúlla og held ég að sé alveg tilvalið að deila einum gullmola með ykkur. Þetta er hið æðisígilda jólalag Jingle Bells, sem margir hafa tekið upp á sína arma en fáir gert með jafnskemmtilegum árangri og konungur jólatónlistarinnar, sjálfur Bing Crosby.

Fleiri jólalögum deili ég svo með ykkur á næstunni.

WordPress Themes