Nýtt myndasafn

LjósmyndasafnEins og glöggir lesendur þessa bloggs hafa tekið eftir, þá er komin linkur í myndaalbúm hérna efst á síðunni, neðst við bannerinn. Þetta er búið að vera þarna í rúman mánuð en ég er ekki búinn að vera duglegur að henda inn myndum þangað. Ég tek yfirleitt mikinn tíma í að klippa myndir til, stilla birtu- og litastig í þeim o.s.frv., tímafrekur prósess, en ég hef bara voðalega lítinn tíma haft fyrir þessa iðju síðustu mánuði. Þess vegna bíður heilt ógrynni mynda eftir því að komast þangað inn, eitthvað sem ég get vonandi gefið mér tíma í eftir Þjóðhátíð einhvern tíma. En það eru allavega komnar einhverjar myndir þangað inn, t.d. myndir frá Klettsvíkurferðinni í júní og frá Reimleikunum sem haldnir voru þann 6. júlí sl.

Fleiri myndir koma svo, eins og ég sagði, einhvern tíma í næsta mánuði.

Úrslitaleikurinn í kvöld

Ég hef svo sem ekki verið að fylgjast með Copa America keppninni af neinu kappi, en hef samt haft annað augað á keppninni, fylgst með úrslitunum og séð flest mörkin. Mínir menn í Argentínu mæta Brasilíu, meisturum síðustu keppni, í úrslitaleiknum í kvöld. Það er sjálfsagt eintóm óskhyggja í mér en vonandi fáum við að sjá álíka snilld og þetta aftur í kvöld…

Þetta gerist ekki öllu fallegra!

Og það varð blogg

SöngfuglÉg játa það alveg að ég er búinn að vera ansi slappur bloggari síðustu misseri. Svo slappur að ég er farinn að fá samviskubit. En til hvers? Er ég skuldbundinn þessu bloggapparati? Nei, ég blogga bara þegar ég nenni og þegar ég hef eitthvað að segja. Ég hef svo sem frá nægu að segja, en ég bara nenni ekki að koma því í orð. Ekki meðan ég hef svona mikið annað að gera. Og svo er veðrið svo ofsalega gott líka, maður á að nýta tímann í annað en að skrifa blogg meðan sól skín í heiði og fuglarnir syngja.

Allavega, Toto á morgun og kveðjuferð upp á Keflavíkurflugvöll á miðvikudagsmorgun, þar sem afi og konan hans eru að fara aftur heim til Bandaríkjanna. Heimilið hér á Brekastígnum áfram fullt af lífi þrátt fyrir það, systir mín er hér, vikona mömmu frá Þýskalandi og annar vinur mömmu frá Bandaríkjunum. Búinn að vera stanslaus gestagangur hérna í meira eða minna heilan mánuð og verður það alveg fram í miðjan ágúst. Og þá verður kominn tími til að huga að flutningum hjá mér… þetta er að nálgast maður!

Djöfull líður sumarið samt óþarflega hratt. Það er bara Þjóðhátíð eftir tæpan mánuð!

Voffi & Kisi

WordPress Themes