Dæmigerð íslensk verðálagning
Jæja, þá er ég búinn að fá nýjar bílagræjur í hendurnar, í staðin fyrir þær sem var stolið úr bílnum hjá okkur hérna um daginn. Ég gerði ítarlega leit að nýju tæki, las mig til á fleiri, fleiri stöðum og vóg og mat svona helstu kosti og galla fjölmargra tækja sem ég skoðaði. Á endanum stóð ég uppi með þetta fantafína Pioneer tæki, sem ég fann á Amazon.com. Ég ákvað að nýta tækifærið og biðja hann afa minn um að smygla tækinu inn í landið fyrir mig, fyrst hann var nú á leiðinni hingað. Svo ég lét senda tækið til hans og hann kom með þetta í gær. Svo fór ég með bílinn og nýju græjuna niðrí Geisla í dag og lét þá setja þetta í fyrir mig. Betra að láta fagmenn um svona verk, þó ég hefði nú örugglega getað fikrað mig áfram í þessu hefði mér ekki boðist annar kostur. Betra að vera viss samt og borga smá þjónustugjöld svo þetta sé nú allt saman gert eftir kúnstarinnar reglum.
Allavega, þetta er svo sem ekki merkileg saga, nema fyrir ákveðið atriði sem ég hef ekki ennþá komið inn á – verðið á græjunni. Þegar ég pantaði græjuna af Amazon.com var mér boðið að kaupa iPod tengi með, einskonar pakkatilboð. Ég skelti mér auðvitað á það, lítið millistykki sem ég tengi bara við iPoddinn og svo stjórna honum algjörlega í gegnum bílagræjuna. Mjög sniðugt og virkilega þægilegt. Hvað um það, þessi pakki kostaði, með sendingargjaldi til afa, rétt tæpar 11.000 krónur. Fínn díll, svo ekki sé nú meira sagt.
Ég ákvað í kjölfar þessara reifarakaupa minna að athuga hvort tækið væri einhversstaðar til sölu hérna heima á Íslandi. Ég slæ tiltekin leitarorð inn í Google og viti menn, þetta sama tæki er til sölu hjá Bræðrunum Ormsson. Þar er tækið auglýst á 29.900 krónur og í fyrstu línunni á lýsingu tækisins er tekið fram “Bein tenging við iPod”. Það er ekki tekið fram sem aukabúnaður, svo ég geri ráð fyrir því að þeir séu að selja þessa græju með iPod tenginu, kannski í svipuðum pakka og ég keypti þetta á Amazon. Ég meina, 29.900 krónur er nú ekkert smá verð, svo þetta halut bara að vera saman í pakka.
Þannig að, ég hringi í Bræðurna Ormsson og spyr út í þetta, hvort tengið fylgi ekki alveg örugglega með í þessu auglýsta verði, fyrst þetta er ekki tekið fram sem aukabúnaður. Nei nei, þetta iPod tengi þarf að kaupa sérstaklega á litlar 9.900 krónur! Sem sagt, samtals kostar þessi pakki, sem ég keypti að utan á tæpar 11.000 krónur, heilar 39.800 krónur hérna á Íslandi!
Haldiði að þetta sé nú rugl!? Ég hefði getað keypt þrjá skammta af þessu þarna úti og samt átt afgang af því sem þetta kostar hérna heima! Ég hefði getað pantað þetta að utan og látið senda þetta beint til mín hingað heim, borgað af þessu tolla og skatta og það hefði samt kostað helmingi minna en þetta kostar hérna! Ég er alveg forviða á þessari verðálagningu! iPod tengið, eitt og sér, kostar $20 á Amazon (1.250-1.300 krónur), en kostar síðan 9.900 krónur hérna heima. Hvernig er hægt að láta fólk komast upp með svona rugl?!
Það er frekar asnalegt fyrir rétthentan mann eins og mig að nota músina með vinstri hendi. Í fyrstu er þetta ekkert ósvipað og að reyna skrifa nafnið sitt með vinstri. En þetta venst furðulega fljótt. Held þetta venjist allavega fljótar en að nota pennann með vinstri. Ég er allavega orðinn mellufær á vinstri höndina sem músarstjórnandi í dag. Það er ekkert voðalegt mál að vafra um í almennri tölvunotkun með vinstri hendinni, en öll nákvæmnisvinna er alveg ómöguleg svona. Maður verður þá bara að hvíla sig á slíkri vinnu rétt um sinn.
Það er nú ekki það sekmmtilegasta að hanga inni á góðum sumardögum með einhverja skíta flensu. En þannig er þessi vika búin að vera meira og minna, búinn að vera hundslappur, með einhverja bullandi pest. Þetta er víst að ganga núna, þekki ýmsa aðra sem hafa lent í þessu og marga hverja mun verr en ég. Ég missti ekki nema einn dag úr vinnu, svo þetta gæti alveg verið verra. En það er samt hundfúlt að geta ekki notið útiverunnar meðan veðrið er sæmilega gott. Frekar að spara þessa veikindadaga þar til að viðrar illa, en maður ræður víst hvenær maður lendir í þessu. Náttúran er óútreiknanlegt fyrirbæri.

Nýja platan með Queens of the Stone Age, Era Vulgaris, kemur út í næstu viku. En hún er auðvitað löngu komin á netið, enda geta gagnrýnendur og útvarpsstarfsmenn ekki setið á sér þegar þeir fá prómó-eintök í hendurnar. Þetta er orðið þannig að nánast allar plötur, stórar sem litlar, leka á netið einhverjum vikum fyrir tilsetta útgáfu. Það er spurning hvernig má komast hjá þessu og hvort það sé yfir höfuð hægt. Þetta er a.m.k. eitthvað sem útgefendur berjast hörðum höndum við að koma í veg fyrir en þetta virðist samt alltaf enda í sama pakkanum. Sjálfur sæki ég nú yfirleitt þær plötur sem ég hlakka til að heyra ef þær leka á netið, en mér þykir þetta samt leiðinlegt ástand og vonandi að þetta breytist eitthvað til hins betra í framtíðinni.
Hún mamma fór upp á land um helgina og tók bílinn með sér. Viti menn, bíllinn er eina helgi í Reykjavík og það er brotist inn í hann! Alveg dæmigert. Voðalegt afbrotabæli er þessi soraborg að verða. En ég veit nú samt ekki hvað vakti fyrir þessum moðhausi sem braust inn í bílinn okkar. Það eina sem hann stal var fronturinn af bílagræjunum… eins og hann hafi eitthvað við hann að gera! Allt annað var látið vera, iPod græja sem sem ég nota til að tengja iPodinn við bílinn, sjónauki, geisladiskar og ýmsilegt annað. Enginn fengur í þessum hlutum greinilega, en fronturinn á bílagræjunni? Þar er sko happahnoss á ferðinni! Andskotans fávitar.