Skólaboltinn farinn að rúlla aftur
Jæja, nú er boltinn farinn almennilega af stað aftur í skólamálum hjá mér. Í gær fékk ég staðfestingu þess efnis að umsóknin mín hefði verið samþykkt og ég þyrfti því næst að senda inn viðtalsbeiðni. Ég var, ásamt félögum mínum tveimur sem eru að sækja um með mér, farinn að verða nokkuð smeykur þarna á tímabili, því við sendum inn umsóknirnar okkar fyrir rúmum 6 vikum síðan og höfðum ekki heyrt neitt frá skólanum til baka. Svo við vorum svolítið í lausu lofti með þetta allt saman. Ég prófaði svo að senda e-mail á skólann í síðustu viku og fékk svar frá þeim í gær um að staðfestingarbréfin hefðu verið send til okkar allra fyrir um viku síðan. Það vildi síðan svo skemmtilega til að þegar ég var búinn að lesa svarið frá þeim fór ég niður og kíkti í bréfalúguna… og viti menn, þar var bréf frá skólanum.
Svo ég pantaði viðtalið strax í dag og fékk það sent í rafpósti alveg um hæl. Ég var rétt í þessu að klára að svara öllum spurningunum og senda það til baka á hann Bruce félaga minn. Svo nú er bara að bíða og vona.
Ég held þetta sé samt nokkuð öruggt (eða ég vona það allavega… vona að ég “jynxi” þetta ekki með því að koma með svona yfirlýsingar). Í svarbréfinu sem ég fékk frá þeim er talað um að umsækjendur séu á svona “fyrstir-koma-fyrstir-fá” beisis og eins og mér skildist þegar ég hringdi í þá rétt áður en við sóttum um, þá var nóg laust á þessa braut í september (námið hefst 3. september).
Endanlegt svar á svo að berast frá þeim eftir u.þ.b. tvær vikur. Eftir það tekur svo bara við íbúðaleit.
Spennó!


Jæja, gleðilegt sumar og allt það. Er ekki annars komið sumar? Mér finnst fullfljótt að vera setja sumardaginn fyrsta í miðjan apríl. Finnst það svona heldur mikil bjartsýni hjá fólki að ætlast til þess að sumarið komi svo fljótt. Ég meina, við búum nú einu sinni á landi ísa og elds. Er ekki hægt að kalla þetta bara ‘vordaginn fyrsta’ frekar? Ég gæti alveg gúdderað það. Ekki að það skipti neinu máli fyrir mig svo sem, en verðurfarslega séð byrjar sumarið auðvitað ekki fyrr en í lok maí/byrjun júní. Veðrið hefur samt verið allt í lagi undanfarið, svolítið kalt reyndar og örlítið vindasamt ennþá, en það er allavega enginn snjór (sjö, níu, þrettán). Mikið ofsalega vona ég að við sjáum engan snjó aftur fyrr en næsta vetur. Snjór er dauði.
Ferlegt er ástandið, næstum því tvær vikur síðan ég bloggaði síðast! Og ekki var það heldur mikið sem ég sagði þá. En hvað get ég svo sem sagt ykkur? Ég gæti sagt ykkur frá páskahelginni, sem var þarsíðustu helgi. Ég gæti sagt ykkur frá því þegar hljómsveitin Ramanamahamanams steig sín fyrstu skref á Conero á páskasunnudag. Ég gæti sagt ykkur frá rótburstun Manchester United á AS Roma í Meistaradeild Evrópu síðastliðinn þriðjudag. Ég gæti sagt ykkur frá þeirri skaðræðisflensu sem er búin að hrjá mig í rétt tæpa viku núna. Svo gæti ég auðvitað farið að tala um veðrið, um það hversu vorlegt er orðið og hversu grænt grasið á blettinum mínum er orðið. Já, ég gæti sagt ykkur svo ótal margt börnin góð, en ég bara nenni því ekki.


























