1979

Yndislegt. Alveg yndislegt!

Eitt sinn skáti?

Robert Baden-Powell, stofnandi skátahreyfingarinnarJá, trúið því eður ei, en ég var einu sinni í skátaflokkinum Smyrill. Ég vildi að ég gæti bætt „sælla minninga“ fyrir aftan síðustu setningu, en svo er bara einfaldlega ekki. Mér fannst hundleiðinlegt í skátunum og finnst þessi hreyfing ofsalega óspennandi og óaðlaðandi, að öllum skátum ólöstuðum. Ég á mikið af góðum vinum innan hreyfingarinnar, en þetta er bara ekki fyrir mig. Ætla ekkert að fara neitt nánar út í það svo sem, en ég get allavega sagt með góðri samvisku að ég er ekki skáti í dag. Ég vígðist neflinlega aldrei sem skáti og þar með gildir setningin „Eitt sinn skáti, ávalt skáti“ ekki um mig.

Helsta ástæðan fyrir því að ég vígðist aldrei inn var sú að systur minni þótti óskaplega gaman að stríða litla bróður sínum þegar hún var á sínum sokkabandsárum. Henni þykir það svo sem enn voða gaman, en það fór að kárna í því gamanið hjá henni eftir að ég óx úr grasi og fór að ráða betur við hana. En hún laug því allavega að mér að við innvígsluathöfnina þyrfti maður að borða hrá fiskaugu og standast aðrar eins ógeðslegar þrautir. Og það sem meira er, þá leiðrétti hún þetta aldrei. Hún sagði aldrei „djók“ eða neitt, hélt þessu bara statt og stöðugt fram þar til ég missti allan áhuga og hætti í skátunum. Það var reyndar ekki eina ástæðan fyrir því að ég missti áhugann á skátunum, en það hjálpaði til.

Lexían í þessari sögu er sú að börn eru trúgjörn og ef þið ætlið að ljúga að þeim og stríða þeim þá borgar sig yfirleitt að leiðrétta lygina áður en hún hefur afdrifaríkar afleiðingar. Svo er aftur manna að dæma hvort afleiðingarnar séu slæmar eða góðar. Ég sé allavega ekkert eftir því að hafa aldrei vígst sem skáti.

Pinback

Úr myndbandinu við lagið Fortress með hljómsveitinni PinbackHljómsveitin Pinback spilar svokallað indie rokk, ofsalega mjúka og aðlaðandi indie-rokkmússík. Það voru einhverjir dauðakippir í loðnunni í gær og ég var kallaður á eina vakt. Ég hlóð iPoddinn af Pinback plötum og lagði glaður af stað í vinnuna. Það hafa nokkrir félaga minna bent mér á þessa hljómsveit nokkrum sinnum og ég hafði aðeins kíkt á MySpace síðuna þeirra, þar sem ég hlustaði á nokkur lög sem lofuðu mjög góðu. Og ekki varð ég fyrir vonbrigðum með plöturnar þeirra. Virkilega skemmtileg hljómsveit, sem spilar alveg ofboðslega sefandi og róandi tónlist. En á sama tíma er tónlist þeirra líka mjög lífleg og örvandi. Þetta er allavega með því besta sem ég hef heyrt úr indie stefnunni.

Lög vikunnar að þessu sinni eru því auðvitað með hljómsveitinni Pinback. En bölvað vesen er það að þurfa velja bara tvö lög. Held ég láti lögin Seville (af plötunni Blue Screen Life frá 2001) og Loro (af plötunni Pinback frá 1998) verða fyrir valinu.

Svo er líka smá auka bónus hérna, myndbandið við lagið Fortress, af plötunni Summer in Abaddon frá 2004. Ansi hreint skemmtilegt myndband og ekki er lagið neitt slor heldur.

Kók bullið

Enn eitt Kókið!Mér er ekkert farið að lítast á þetta Kók fíaskó. Ég finn til með fólki sem er krónískt óákveðið og á við mikinn valkvíða að stríða. Hvað á maður að halda þegar maður lítur inn í Kók-kælinn í næstu matvöruverslun og sér fjórar tegundir af Coca Cola til sölu? Og það sem meira er, þá eru þrjár af þessum tegudnum meira að minna nákvæmlega sami hluturinn. Venjulegt Kók er auðvitað bara venjulegt Kók. En Diet Kók, Coke Lite og Coke Zero eru nákvæmalega sama sullið í sitt hvorum umbúðunum. Það er kannski aðeins minna bragð af Diet Coke heldur en Lite og Zero, en af hverju þá ekki bara að taka það af markaðnum? Hvaða heilvita maður kaupir sér Diet Coke ef Coke Lite og Coke Zero er nákvæmlega sami hluturinn með meira bragði? Þetta getur einfaldlega ekki verið að svara kostnaði hjá þeim. Og hver er svo munurinn á Coke Lite og Coke Zero? Er þetta kannski bara eitthvað sem ég einn er ekki að fatta? Hvaða pillur voru þau að bryðja þarna í markaðsdeildinni hjá Coca Cola?

Það er vanmetin nautn að hafa gott úrval og mikinn fjölbreytileika þegar kemur að neysluvörum, eitthvað sem við tökum oft sem sjálfsögðum hlut. En þetta finnst mér bara vera að skjóta yfir markið… hátt yfir markið! Ég held bara að velmegunin í vestrænu samfélagi sé á köflum komin langt út fyrir öll velsæmismörk.

Lýrufuglinn: Eftirherma náttúrunnar

George Costanza hittir naglann á höfuðið!

Lausnir við tónlistargetrauninni

MússíkaÉg verð nú að lýsa yfir vonbrigðum mínum með þátttökuna í tónlistargetrauninni. Greinilegt að fólk er skíthrætt við að segja einhverja „vitleysu“ eða að láta „fáfræði“ sína í ljós í ótta um að gera sig að einhverju fífli. Það var alveg sama hvað ég reyndi að reka á eftir fólki, hvetja það til að svara eða allavega giska, það var stundum nánast eins og ég væri að biðja fólk um að syngja þessi lög inn á vídeó fyrir mig, svo mikil var fælnin við að svara. En það bárust allavega svör frá fjórum einstaklingum og þakka ég þeim kærlega fyrir þátttökuna. Þetta voru þau Ástþór, Jón Helgi og Jóna Heiða… og Einir! Ég var við það að fara setja inn þennan póst þegar ég fékk svörin frá Eini, alveg á síðustu stundu.

Hér koma svörin:

#1 – Red Hot Chili Peppers – Soul to Squeeze
Ástþór og Jón Helgi voru með þetta á hreinu. Jóna giskaði út í loftið á þetta, þar sem hún var ekki með þetta á hreinu en fannst samt glatað að skilja eftir autt. Hún giskaði á lagið North Country Boy með The Charlatans. Einir giskaði rétt á RHCP en var ekki með lagið á hreinu.

#2 – Turin Brakes – Mind Over Money
Þetta gátu Ástþór, Jón og Jóna og olli þetta Jóni Helga miklum heilabrotum. Hann gat varla sofið fyrstu nóttina eftir að hafa heyrt þetta, lagði sig síðan mikið fram daginn eftir og hafði þetta svo á endanum. Glæsilega gert. Einir giskaði á Optimistic með Radiohead.

#3 – Incubus – Drive
Allir með þetta á hreinu.

#4 – Faith No More – Easy
Allir nema Einir með þetta, sem giskaði á Bon Jovi. Fín tilraun, en enginn vindill.

#5 – Green Day – Macy’s Day Parade
Þetta gat enginn nema Einir. Það kom mér á óvart hvað þetta lag veltist fyrir fólki, því ég hélt þetta væri svo auðþekkt lag. Hefði Einir ekki sent inn sínar tilgátur á síðustu stundu hefði þetta verið eina lagið sem enginn gat. Jóna Giskaði á Drugs Don’t Work með The Verve, sem hún vissi að væri ekki rétt en enn og aftur fannst henni glatað að skila bara auðu. Jón Helgi giskaði á ‘eitthvað með Richard Ashcroft’ og Ástþór giskaði á ‘eitthvað með Snow Patrol’.

#6 – The Dandy Warhols – Every Day Should Be a Holiday
Jón og Jóna voru með þetta rétt. Ástþór giskaði á lagið ‘Holiday’ með Stone Roses, sem segir mér að hann hafi verið með puttann á réttu lagi. Gef Ástþóri 1 stig fyrir góða tilraun þarna. Einir giskaði á Radiohead.

#7 – The Shins – New Slang
Jóna Heiða var sú eina sem var með þetta rétt. Jón, Ástþór og Einir skiluðu allir auðu í þennan reit.

#8 – Beck – Sexx Laws
Allir með þetta rétt, nema að Einir vissi ekki hvað lagið héti. Hann giskaði samt rétt á Beck.

#9 – Coldplay – The Scientist
Sama hér, Jón, Jóna og Ástþór giskuðu rétt á lag og flytjanda en Einir var ekki með nafnið á laginu á hreinu, þó hann hafi giskað rétt á Coldplay.

#10 – Supergrass – Richard III
Ástþór, Jón og Jóna voru með þetta rétt.

Úrslit:
Jón Helgi: 24 stig
Jóna Heiða: 24 stig
Ástþór: 22 stig (21 plús 1 bónus stig fyrir ‘Holiday’)
Einir: 12 stig

Þannig að Jón Helgi og Jóna Heiða verða að deila með sér fyrsta sætinu í þetta skiptið.

Þrátt fyrir dræma þáttöku ætla ég nú samt að koma með aðra getraun bráðlega. Þá vona ég bara að það treysti sér fleiri í að spreyta sig. Og takk aftur til þeirra sem tóku þátt. Þið fáið plús í kladdann hjá mér.

Niðurstöðum frestað til annars kvölds

Niðurstöður úr tónlistargetrauninni birtast ekki í kvöld eins og ég sagði í síðastu færslu. Málið er að færlsan kom ekki inn fyrr en sólarhring eftir að hún átti að birtast vegna þess að það var eitthvað vesen á Bloggernum. Svo þið hafið sólarhring í viðbót til að melta þetta með ykkur og senda mér svörin ykkar.

Ofurgras

Hljómsveitin SupergrassÉg hlustaði gríðarlega mikið á hljómsveitina Supergrass á nýafstaðinni vertíðinni. Ég fór í gegnum allar plöturnar þeirra oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, eitthvað sem ég hafði aldrei gert en hafði lengi ætlað mér að gera. Ég vissi alltaf að þeir væru ágætir, hafði heyrt svona þetta helsta með þeim og mig hefur lengi langað til að tékka betur á þeim, en aldrei orðið úr því af einhverjum sökum. En eftir þessa gríðarlegu Supergrasstörn sem ég tók á vertíðinni er ég allavega alveg sannfærður um að þetta er einhver albesta hljómsveit sem kom fram á Britrock tímabilinu. Alveg ótrúlega góð og einkar vanmetin grúbba.

Lögin sem ég ætla að bjóða upp á eru annars vegar Mary af plötunni Supergrass frá 1999 og hins vegar I’d Like to Know, sem er upphafslag fyrstu plötu þeirra frá árinu 1995, I Should Coco.

Svo vil ég minna á tónlistargetraunina aftur. Svörin koma inn á sunnudaginn, svo þið hafið tíma þangað til að melta þetta með ykkur. Ég hef bara fengið svör frá 3 aðilum hingað til en vonast nú til að fá fleiri.

Tónlistargetraun

Jæja, þá er komið að því sem ég er búinn að ætla gera hérna í lengri, lengri tíma. Var að brugga þessa hugmynd alla loðnuvertíðina og sá svo að Boggi skaut upp kollinum fyrir stuttu síðan með kvikmyndagetraun. Ég get því ekki verið minni maður og hrindi hér með af stað tónlistargetraun í svipuðum dúr.

Getraunin samanstendur af brotum úr 10 lögum sem ég hef klippt saman. Í brotunum eru engir textar, aðeins laglínur, sóló og melódíur sem ættu að kveikja á perunni hjá ykkur. Ég ákvað að hafa enga texta því þannig væri ekkert mál að fara á Google og leita að svarinu. Þetta er ekki erfitt, ákvað að hafa fyrstu getraunina nokkuð létta, svo ég vil að sem allra flestir láti reyna á þetta og taki þátt, sama hvað þeir geta mikið eða lítið. Það er örugglega eitthvað þarna sem ekki allir þekkja, en það ættu allir að geta eitthvað, ef ekki megnið af þessu held ég.

Stigagjöfinni er þannig háttað:

Réttur flytjandi = 2 stig
Rétt nafn á lagi = 2 stig
Réttur flytjandi og rétt nafn á lagi = 3 stig

Mest er hægt að fá 30 stig í heild fyrir að giska rétt á alla flytjendur og heiti allra laga.

Getraunina má nálgast með því að smella hér.

Svör berist svo til mín á MSN eða í gegnum e-mail (hvoru tveggja má nálgast hægra megin á síðunni). Vinsamlegast svarið ekki í comentakerfið!

WordPress Themes