Category: Ýmislegt

Gleðileg jól!

Það er Þjóðhátíð

… vildi bara láta ykkur vita!

Skál!

Tilnefndur

Kjósa migJæja, er ekki viturlegra að skella einhverju hingað inn fyrst maður var að fá tilnefningu sem bloggari ársins hjá Slingernum. Ég vann þessi verðlaun fyrir tveimur árum en missti svo titilinn í fyrra eftir hatramma baráttu við hann Borgþór. Boggi var víst kominn með kosningastjóra í málið og var með tvo menn í vinnu hjá sér á fullum launum við það að safna handa honum atkvæðum með ýmsum bellibrögðum. Þokkalegur “sigur” það. Mér sýnist á öllu það sama vera upp á teningnum hjá honum Tryggva þett árið. En ég ætla nú bara að gera þetta á gamla góða og heiðarlega mátann í ár og bendi ykkur því bara á að vafra yfir á Slinger.tk og veita mér ykkar atkvæði. Nú, ef ykkur finnst einhver annar eiga atkvæðið meira skilið þá er ykkur að sjálfsögðu frjálst að kasta atkvæði ykkar á glæ. Ykkar er valið.

En hvað er annars að frétta? Ég hef heyrt ófáar vælurnar af heilmiklum snjóþunga heiman af Klakanum. Ég get ekki sagt að ég sakni snjósins. Og hér hefur ekkert snjóað. Það var svona alveg á mörkunum að snjóa áður en ég fór héðan heim um jólin, en eftir að ég sneri til baka hefur hitastigið ekki einusinni droppað undir 6° á celcius. Stundum hefur þetta meira að segja farið upp í 12-13°, sem er nú ekki slæmt. En það er samt voðalega hvasst hérna (alveg þolanlega samt… ekkert eins og heima) og það rignir svolítið með rokinu, en það er auðvitað mikið betra en að klofa snjóinn upp í mitti. Megi snjóleysið lengi lifa meðan dvöl minni hér heldur áfram!

Vona að allir hafi troðið sig út af sprengimat í gær og bollum daginn þar á undan. Mikið langaði mig í saltkjöt og baunasúpu í gærkvöldi. Ég get alveg lifað án bollanna, en sprengidagsmaturinn þykir mér alveg ómissandi. En hann er ekki boðstólnum hér, enda halda Niðurlendingar ekki upp á sprengingar. Ojæja, maður getur svo sem nagað þetta Hollendingafóður á meðan, þar til kemur að þarnæsta sprengidegi.

Ég held að Bing Crosby sé löngu búinn í jólafríi og farinn að syngja nýja söngva um skammdegisþunglyndi og vetrarhörku. Við skulum skipta honum út og fá inn nýtt lag. Hljómsveitin The Coral gaf út nýja plötu í ágúst í fyrra, sem fór algjörlega framhjá mér þar til fyrir nokkrum vikum síðan. Sú uppgötvun vakti upp hjá mér mikla gleði, enda mikil snilldargrúbba hér á ferð og ávalt fagnaðarefni þegar svona skemmtilegar hljómsveitir gefa út plötur. Lagið sem ég ætla að bjóða upp á heitir Put the Sun Back og er einmitt af þessari fínu plötu, Roots & Echoes.

Gott í bili. Það held ég nú. En ekki gleyma að gefa mér stig á Slinger.tk.

Gleðilegt ár!

Gleðileg jól!

Gleðileg jól!

Uncle Andri

Sóley systir eignaðist litla stelpu i gær. Til hamingju Sóley og Lokesh!

PS: Mér finnst að hún eigi að heita Andrea! ;)

Ahoy, me harty!

Á morgun, miðvikudaginn 19. september, er hinn árlegi og alþjóðlegi talaðu-eins-og-sjóræningjadagur, eða “International talk like a pirate day” eins og það heitir á frummálinu. Ef þú kannt ekki að tala eins og sjóræningi þá er hér myndband þér til aðstoðar:

Yarrr!

Tuttugu og níu

Tuttugu og níu ára er égJæja, þá lifa ekki nema 366 dagar af þrítugsaldrinum hjá mér. Næsta ár er hlaupár svo ég fæ einn auka dag áður en fertugsaldurinn færist yfir. Ég verð kominn á fertugsaldurinn eftir eitt ár! Ég sagði þetta upphátt í fyrsta skiptið fyrir svona mánuði síðan og þetta sló mig svolítið. “Fertugsaldur” er orð sem hljómar ekki vel, ekki fyrir mann á þrítugsaldri allavega. Mér líður ennþá eins og ég sé bara rétt kominn á þrítugsaldurinn.

En aldurinn er auðvitað bara afstæður; andlegur aldur a.m.k. Annars eru líkamleg einkenni aldursins alveg farin að láta á sér kræla – hárið er orðið allískyggilega þunnt, að aftan allavega og það er farinn að færast grámi í vangana. Andiltið er ekki eins unglegt og það var áður, það hef ég verið að uppgötva meira og meira er ég fer í gegnum gamlar myndir. Svo er eitt og annað sem segir mér að ég sé ekkert unglamb ennþá, eins og hnén á mér, bakið og andlega og líkamleg líðan eftir gott fyllirí. En ég er ekkert að væla, þetta er eðlilegt og maður tekur þessu eins og öllu örðu. Eins og ég sagði, þá líður mér ekki deginum eldra en mig langar til að vera og meðan staðan er þannig þá er ég í góðum málum. Ég ræð því alveg sjálfur hversu “gamall” ég er í raun og veru.

En kíkjum aðeins á vikkípedía og skoðum þessa merkilegu tölu, tuttugu og níu:

• 29 er tíunda prímtalan (ég gæti talið upp ýmsa fleiri stærðfræðilega fróðleiksmola um töluna, eins og t.d. að talan er svo kölluð “Markov tala” og birtist í lausnunum við x2 + y2 + z2 = 3xyz: {2, 5, 29}, {2, 29, 169}, {5, 29, 433}, {29, 169, 14701}, o.s.frv. En ég vil að fólk haldi áfram að lesa bloggið mitt.)

• 29 er fjöldi beina í höfuðkúpu mannskepnunnar.

• Það eru 29 dagar í febrúar á hlaupári. Næsta ár verður einmitt hlaupár, meðan ég er 29 ára. Afar skemmtileg tilviljun. Eða er þetta kannski engin tilviljun?

• 29 er fjöldi bókstafa í tyrkneska, finnska, færeyska og norska stafrófinu.

• 29 er hæsti mögulegi stigafjöldi á hendi í kribbu.

• 29 er fjöldi ára sem það tekur Satúrnus að ferðast einn hring í kringum sólina.

• Í Kaliforníu fylki í Bandaríkjunum er bær sem heitir Twentynine Palms, eða Tuttugu og Níu Pálmar á íslensku. Maður ætti kannski að fara í pílagrímsferð?

Ansi merkileg tala, finnst ykkur ekki?

WordPress Themes