Euro 2008 fever!
Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Evrópukeppnin í knattspyrnu fer fram um þessar mundir, hvað þá ef þú býrð í Hollandi. Þú þarft væntanlega að vera í einangrun í fangelsi til að láta þetta framhjá þér fara hér í landi. Hér er allt undirlagt knattspyrnu, hvort sem það er í fjölmiðlum, verslunum, opinberum stofnunum eða heimilum. Það er alls staðar skreytt í tilefni mótsins, utan á öðru hverju heimahúsi hanga appelsínugulir fánar og veifur, strætin í miðborginni iða af appelsínugulum skreytingum, verslanir selja appelsínugulan fatnað í tonnavís, matvæli og aðrar neysluvörur eru settar í appelsínugular umbúðir og svo mætti lengi telja. Ég er viss um að ef tekin væri loftmynd af Evrópu utan úr geimnum, þá væri Holland appelsínugult á litinn. Í þessum töluðu orðum er ég einmitt að borða appelsínugulan kleinuhring og drekka mjólk með… úr appelsínugulri fernu!
Ég horfði á leikinn í gær, þar sem Hollendingar fóru nokkuð létt með Ítali, unnu þá 3-0. Ég spjallaði við nágranna mína í hálfleik, aldraða konu og son hennar (sem bæði voru að sjálfsögðu í appelsínugulum klæðum). Þau voru frekar hissa yfir þessu, enda eru Hollendingar ekkert endilega að gera neinar ofsavæntingar, eru frekar raunsærri þegar kemur að stórmótum í íþróttum heldur en við Íslendingar t.d.
En það var auðvitað hamingjan ein hvert sem maður leit eftir sigurinn í gær. Við kíktum aðeins á hverfisbarinn eftir leikinn, þar sem enn var fólk að fagna, en samt frekar rólegt svona heilt yfir. Enda var nú bara mánudagskvöld. Það verður eflaust meira fjör yfir þessu á föstudaginn, þegar Hollendingar mæta Frökkum. Þá er ætlunin að kíkja niður í bæ og horfa á leikinn á einhverju torginu þar í hópi fjölmennis. Og ef sá leikur vinnst, þá má sko alveg gera ráð fyrir alvöru fjöri!
En já, stemningin fyrir þessu móti hérna er alveg ótrúlega skemmtileg og magnað að fá að upplifa þetta. Þetta væri auðvitað skemmtilegra ef maður skildi tungumálið, enda eru nánast allar sjónvarpsstöðvar hérna með einhverskonar þætti sem tengjast keppninni á einn eða annan hátt, en það er auðvitað allt saman á hollensku. Maður finnur samt fyrir þessu hvert sem maður fer og það taka allir þátt í stemningunni, hvort sem það eru háaldraðar kerlingar, kornungir villingar eða eitthvað þar á milli, þá hafa allir hér sama áhugamálið þessa dagana: Fótbolta. Svona á þetta að vera!
Áfram Holland!








