Category: YouTube
Ekki lengur alveg snjólaust
Undanfarna daga hef ég þakkað mínum sæla fyrir það að vera ekki heima á Eyjunni björtu. Fannfergi er ekki í uppáhaldi hjá mér, hvað þá þegar það nær því magni að það hamlar almennar samgöngur innanbæjar í Vestmannaeyjum! En svona snjór hefur bara ekki sést í Eyjum í mörg ár, bara ekki síðan ég var krakki. Mér fannst þetta voðalega spennandi þegar ég var peyji, enda hafði ég ekki vit á öðru. Og mig grunar nú að ég hefði haft lúmskt gaman af þessu í gær og í fyrradag. En það hefði verið stutt gaman; spennandi meðan þetta er að falla og meðan mesta klikkunin stendur yfir. En svo fer þetta að hlána og frysta aftur og skaflarnir fara að hlaðast upp og maður á erfitt með að komast milli staða án þess að eiga á hættu að öklabrjóta sig. En ég þarf svo sem ekkert að segja ykkur um þetta, ykkur sem búið á eyjunni… eða bara á Íslandi yfir höfuð. Þetta er allavega ekki fyrir mig. Ég er enginn aðdáandi snjós. Þvert á móti!
En hér í Amsterdam hafði ekkert snjóað, þangað til í dag. Ég opnaði stofugluggann í dag, fékk mér sæti og horfði út um gluggann þar sem gekk á með haglélum, slyddu og snjókomu til skiptis í einhvern tíma. Hugsaði svo með mér að það færi nú aldrei svo að ég yrði svo heppinn að upplifa snjólausan vetur hérna úti. En þetta var stutt og það situr eiginlega ekkert eftir af þessu á jörðinni. Sem er gott… vona bara að það komi ekki mikið meira af þessu.
En að öðru. Ég lét loksins verða að því að kaupa mér kort í ræktina í dag. Er búinn að láta það sitja á hakanum í allt of langan tíma. Við búum nánast við hliðina á líkamsræktarstöðinni The Temple, erum ekki nema kannski 2-3 mínútur að hjóla þangað. Svo maður hefði auðvitað löngu átt að vera búinn að kaupa sér kort, enda hefur þetta hreyfingarleysi alveg verið að fara með mig. Hinir peyjarnir voru reyndar löngu búnir að versla sér aðgang að Musterinu en letin í mér hélt mér heljartökum þangað til í dag. Þar sem ég var staddur í ræktinni í dag varð mér hugsað til myndbands frá YouTube fígúrunni Some Grey Bloke, sem ég held mikið upp á:
Hafið það gott og passið að borða ekki gula snjóinn!
Let It Snow með Fret Killer
Ég lofaði ykkur fleiri jólalögum og hér kemur eitt í YouTube formi. Þetta er gaur sem kallar sig Fret Killer og er einn af mínum uppáhalds YouTube tónlistar-mönnum. Algjör snillingur á gítarinn en það veit enginn hver þetta er í rauninni. Það hafa ýmsar getgátur komið upp um það hver sé þarna á ferð, en hann fer alltaf huldu höfði í myndböndum sínum og lætur gítarinn einfaldlega tala sínu máli, auk söngsins auðvitað í þeim lögum sem það á við.
Allavega, hér er lagið Let It Snow með Fret Killer.
(Það virðist ekki virka að pósta þessu vídeói á bloggið hjá mér, svo ég býð ykkur bara upp á beinan tengil á þetta í staðinn.)
Annnars mæli ég með að þið skoðið fleiri myndbönd á YouTube síðunni hjá Fret Killer. Hann er með nokkur jólalög þarna, fyrir þá sem vilja koma sér í jólaskapið með ljúfum kassagítartónum. En fyrir utan jólalögin er hann líka með fleiri mjög skemmtileg vídeó, eins og t.d. The Etowah Shuffle sem er í sérstöku uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Gott stöff!
PS: Ný könnun!
Belgískt barnaefni
Ég rakst á þetta í sjónvarpinu í dag og ég verð að viðurkenna að mér stökk bros á vör.
Og allir saman: “La la laaaa, la la laaaa”!