Category: Getraunir & Leikir

Lausnir við tónlistargetraun #4

Þá hafa mér borist ágiskanir frá sjö þátttakendum í tónlistar-getrauninni. Ég hefði reyndar viljað sjá fleiri taka þátt en þetta er nú samt alveg hin sæmilegasta þáttaka.

Keppendur voru þessir:

  • Ari Guðmunds
  • Arnar Valgeir
  • Ástþór
  • Boggi
  • Henry
  • Jón Helgi
  • Þóranna

Og hér koma rétt svör:

#1. Reef – Place your hands
Fjórir þáttakendur með þetta rétt, þrír með rangt. Arnar giskaði á She’s My Sister með Stone Roses, Henry giskaði á eitthvað með Dave Matthews Band og Ari skilaði auðu.

#2. Crash Test Dummies – Afternoons & Coffeespoons
Klassískur smellur frá 90s bandinu með djúpraddaða söngvarann. Arnar og Ari skiluðu auðu á þetta lag, aðrir voru með þetta á hreinu.

#3. Men at Work – Down Under
Einslagsundirð frá Ástralíu. Mjög 80s. Þetta voru allir með rétt, þótt sumir hafi ekki verið með titilinn alveg á hreinu. Land Under, Land Down Under og Down Under voru þó allt saman fullnægjandi ágiskanir.

#4. The Hives – Hate to Say I Told You So
Arnar og Ástþór héldu báðir að þetta væri Song 2 með Blur en aðrir svöruðu þessu rétt.

#5. Gary Glitter – Rock & Roll, Part 2
Þetta átti að vera rosa erfitt en reyndist auðveldara en ég hélt, þar sem fjórir voru með rétta lausn við þessu. Jón Helgi giskaði á eitthvað með Ozzy, Bogga fannst þetta hljóma eins og Talking Heads en var ekki alveg viss og Ástþór giskaði nokkuð skemmtilega á að þetta væri lagið Hey með The Wumwum Band.

#6. Tvíhöfði – La la la la Doddi litli
Þetta var kannski frekar kvikindislegt af mér, bjóst ekki við að neinn myndi geta þetta. En Boggi og Arnar eru greinilega með Tvíhöfðann sinn á hreinu og könnuðust strax við þetta. Þetta lag er reyndar flutt af Sverri Stormsker og Dodda litla, sem ég vissi ekki fyrr en Boggi benti mér á það, en það er allavega á Tvíhöfðaplötunni Til Hamingju svo ég tel þetta sem Tvíhöfðalag. En já, Arar og Boggi gátu þetta sem sagt rétt, Tóta giskaði á eitthvað með Baggalúti, Jón Helgi og Ástþór voru báðir nokkuð nálægt því og giskuðu á að þetta væru Fóstbræður og Ari giskaði einfaldlega á að þetta væri “eitthvað íslenskt”. Henry skilaði auðu.

#7. Garbage – Only Happy When It Rains
Ari, Arnar og Jón Helgi voru með rétta svarið við þessu. Tóta var alveg ofsalega nálægt því, munaði bara einu orði. Hún giskaði á Only Happens When It Rains, sem ég gat því miður ekki gefið rétt fyrir. Henry var með Garbage á hreinu en ruglaðist á lögum og giskaði á Stupid Girl. Boggi giskaði út í bláinn á lagið Nondurkin með hljómsveitinni Durkin Love og Ástþór hélt að þetta væri hljómsveitin Catatonia með lagið Drop Dead Gorgeous.

#8. Jet Black Joe – I, You, We
Þetta var gefins. Allir með þetta rétt.

#9. The Cardigans – Hanging Around
Arnar, Ari og Boggi héldu allir að þetta væri Every You, Every Me með Placebo og Henry giskaði á Radiohead. Aðrir svöruðu réttu.

#10. Muse – New Born
Þetta virtist ekki vefjast fyrir neinum. Allir með þetta rétt.

Stigin féllu sem hér segir:

  • 1. Þóranna – 25
  • 2. Jón Helgi – 24
  • 3. Boggi – 21
  • 4. Henry – 19
  • 5. Ástþór – 18
  • 6. Arnar Valgeir – 18
  • 7. Ari Guðmunds – 18

Ástþór, Arnar og Ari voru með jafnmörg stig, en skiluðu inn í þeirri röð sem stigataflan sýnir, Ástþór fyrstur og Ari síðastur.

Og þar með er hún Þóranna Hrönn Þórsdóttir krýndur meistari tónlistargetraunar Andra Hugo í þetta sinn og hefur því tryggt sér montréttinn fram að næstu getraun. Til hamingju með það, Tóta!

Tónlistargetraun #4

Svona fyrst það eru að koma jól og prófleiðinn sjálfsagt að drepa marga þá held ég að það sé tilvalið að fólk slíti sig frá bókunum og spreyti sig á eins og einni léttri getraun. Þetta er fjórða getraunin sem ég set saman og finn ég fyrir því að það verður erfiðara og erfiðara að setja þær saman eftir því sem þær verða fleiri, þar sem maður fer að verða uppiskroppa með hugmyndir að lögum sem sem flestir ættu að þekkja.

En ég held mér hafi tekist nokkuð vel til með að finna gott jafnvægi milli auðveldra og erfiðra laga í þessari getraun. Maður veit þó aldrei nákvæmlega með það, þar sem stundum vita allir það sem ég held að sé erfitt og fáir þekkja það sem ég hélt að allir gætu. Svo þetta er svolítið tvísýnt oft.

En jæja, þá að leiknum. Getraunin samanstendur af brotum úr 10 lögum sem ég hef klippt saman. Í brotunum eru engir textar, aðeins laglínur, sóló og melódíur sem ættu að kveikja á perunni hjá ykkur. Og, eins og alltaf vil ég fá ágiskanir frá sem flestum, alveg sama hversu vel eða illa þið haldið að þið hafið staðið ykkur. Það eru ekki margir sem eru með þetta allt á hreinu og því þarf enginn að skammast sín fyrir furðulegar ágiskanir. Því fleiri sem taka þátt, því skemmtilegri verður leikurinn.

Stigagjöfinni er þannig háttað:

Réttur flytjandi = 1 stig
Rétt nafn á lagi = 1 stig
Réttur flytjandi og rétt nafn á lagi = 3 stig

Mest er hægt að fá 30 stig í heild fyrir að giska rétt á alla flytjendur og heiti allra laga.

Getraunina má nálgast með því að smella hér eða einfaldlega smella á play hér fyrir neðan.

Svör berist svo til mín á MSN eða í gegnum e-mail (hvoru tveggja er andrihugo[hjá]hotmail.com). Vinsamlegast svarið ekki í comentakerfið!

Lausnir við tónlistargetraun #3

Jæja, þá hafa mér borist ágiskanir frá 7 þáttakendum í tónlistargetrauninni, sem er nokkuð góð þáttaka bara. Ég get ekki verið annað en sáttur við það. Það var líka gaman að sjá að fólk var allavega að giska þótt það væri ekki endilega með allt saman á hreinu.

Keppendur voru þessir:

  • Ástþór
  • Jón Helgi
  • Sindri Freyr
  • Stefán Barga
  • Sunna
  • Tóta
  • Viktor Smári

Og lögin voru sem sagt þessi:

#1. Lenny Kravitz – Rock and Roll Is Dead
Þetta höfðu allir rétt nema Tóta, sem giskaði á hljómsveitina Deep Purple (engin ágiskun á nafn lagsins hjá henni).

#2. Space Hog – In The Meantime
Gamall og góður 90s smellur, eitt af fjölmörgum einslagsundrum frá þessum tíma. Sindri Freyr var sá eini sem fékk 3 stig fyrir þetta. Ástþór vissi hvað lagið hét og Stebbi var með hljómsveitina, en hann giskaði á að lagið héti “In the Moment”. Ekki fráleidd ágiskun, Stebbi, en ég gat því miður ekki gefið þér rétt fyrir þetta. Aðrir skiluðu auðu á þetta lag.

#3. Boston – More Than a Feeling
Þetta voru allir með á hreinu, enda auðþekkjanlegt og klassískt lag.

#4. Otis Reading – Dock of the Bay
Þessu svöruðu allir rétt nema Viktor Smári og Jón Helgi. Viktor giskaði nokkuð skemmtilega á “Flautulag” meðan Jón Helgi sleppti því alfarið að giska.

#5. Manic Street Preachers – If You Tolerate This Your Children Will Be Next
Þetta lag flæktist ekki fyrir neinum. Allir með þetta rétt.

#6. Dexy’s Midnight Runners – Come On Eilene
Fimm af sjö þáttakendum voru með þetta alveg á kristaltæru. Jón Helgi og Sunna slepptu því hins vegar bæði að giska.

#7. Pelican – Jenny Darling
Þetta var sennilega erfiðasta lagið í þessari getraun, enda hafði ég þetta með af ásettu ráði til að gera ykkur svolítið erfiðara fyrir. Pétur Kristjáns og félagar í Pelican fluttur lagið Jenny Darling. Stebbi var einn með 3 stig fyrir þetta. Ástþór fékk 1 stig fyrir að geta nafnið á laginu, en var hins vegar ekki með hljómsveitina á hreinu. Tótu fannst þetta hljóma eins og eitthvað með Monty Python og Sindri ákvað að giska út í loftið og skaut á “Dancing in the Moonlight” með Thin Lizzy. Aðrir svöruðu engu.

#8. Toto – Hold the Line
Viktor, Sunna og Stebbi fengu öll 3 stig fyrir þetta. Tóta fékk stig fyrir að geta hljómsveitina rétt, en eins og Nonni, Ástþór og Sindri Freyr, giskaði hún á að lagið héti “Love Isn’t Always on Time”, sem er vissulega lína úr laginu, en ekki titill þess. Nonni og Sindri héldu svo að þetta væri hljósveitin Foreigner, meðan Ástþór giskaði á Boston.

#9. Dire Straits – Walk of Life
Tóta, Jón, Viktor, Sindri og Stebbi fengu fyrir þetta 3 stig. Ástþór fékk 1, en hann giskaði á að lagið héti “Walk All Night”. Close, but no cigar, Ástþór. Sunna gaf skít í þetta og svaraði “Eitthvað suðurríkja drasl!”. Ekki aldeilis, Sunna mín.

#10. Tweety – Gott Mál
Eins og hitt íslenska lagið í þessari getraun, þá var þetta í erfiðari kantinum. Stebbi og Tóta voru með þetta alveg hárrétt, meðan Ástþór var með hljómsveitina á hreinu, en giskaði á lagið “Krösj (eða einhver enskusletta)”. Ekki vitlaus ágiskun svo sem, þar sem er farið mjög frjálslega með enskuslettur í þessu lagi. Annars giskuðu Sindri og Sunna á hljómsveitina Todmobile; Sunna svaraði engu lagi meðan Sindri sagði Stúlkan. Viktor smári hélt einnig að lagið héti Stúlkan, en giskaði nokkuð furðulega á að Sykurmolarnir væru flytjendur. Jón Helgi giskaði ekki á þetta.

Stigin féllu sem hér segir:

  • 1. Stefán Braga – 28
  • 2. Sindri Freyr – 21
  • 3. Tóta – 19
  • 4. Ástþór – 19 (Jafnmörk stig og Tóta, en skilaði svörum inn seinna)
  • 5. Viktor Smári – 18
  • 6. Sunna – 15
  • 7. Jón Helgi – 12

Og þar hafið þið það. Stefán Bragason kom óvæntur inn í keppnina á lokasprettinum og svaraði öllu rétt, nema hann var með nafnið á einu laginu vitlaust og var því aðeins hársbreidd frá fullu húsi stiga. Til hamingju með sigurinn, Stebbi! Þú hefur eignað þér montréttinn fram að næstu getraun.

Tónlistargetraun #3

Ég ætti nú að vera læra undir próf eins og er, en auðvitað finnur maður sér eitthvað annað og “betra” að gera undir slíkum kringumstæðum. Þannig að ég ákvað að smella saman eins og einni tónlistargetraun, svona aðeins til að endurvekja þennan fína leik. Það er komið rétt rúmlega ár síðan ég var síðast með tónlistargetraun, eða þann 11. maí í fyrra. Þannig að það er löngu kominn tími á nýja getraun.

Það var ágætis þátttaka síðast og ég vona að hún verði allavega jafngóð núna, ef ekki betri. Því fleiri sem taka þátt, því skemmtilegri verður leikurinn. Og ekkert vera hafa áhyggjur af því ef þið séuð ekki með þetta alveg 100% á hreinu. Sendið mér bara svörin við því sem þið vitið eða haldið að þið vitið, eða giskið bara á það sem þið vitið ekki eða eruð í vafa með. Mér er skítsama hvernig svörin líta út, svo lengi sem ég fái svör frá sem flestum!

Jæja, snúum okkur þá að leiknum. Getraunin samanstendur af brotum úr 10 lögum sem ég hef klippt saman. Í brotunum eru engir textar, aðeins laglínur, sóló og melódíur sem ættu að kveikja á perunni hjá ykkur. Ég held að þessi getraun sé kannski í við erfiðari en síðast, en þó veit ég ekki. Síðasta getraun fannst mér (og ykkur sem tókuð þátt) aðeins og auðveld, svo ég lofaði því að sú næsta yrði aðeins strembnari. En þetta er alls ekki of erfitt, það eru lög þarna sem allir eiga að þekkja og kannast við og svo kannski 2-3 lög sem ættu að flækjast fyrir sumum.

Stigagjöfinni er þannig háttað:

Réttur flytjandi = 1 stig
Rétt nafn á lagi = 1 stig
Réttur flytjandi og rétt nafn á lagi = 3 stig

Mest er hægt að fá 30 stig í heild fyrir að giska rétt á alla flytjendur og heiti allra laga.

Getraunina má nálgast með því að smella hér eða einfaldlega smella á play hér fyrir neðan.

Svör berist svo til mín á MSN eða í gegnum e-mail (hvoru tveggja er andrihugo[hjá]hotmail.com). Vinsamlegast svarið ekki í comentakerfið!

WordPress Themes