Leðurblökumaðurinn
Mikið hlakka ég til næstu Batman myndar. Vorum að enda við að horfa á Batman Begins hérna og ég verð að segja að þetta er uppáhalds Batmanmyndin mín, ef við horfum framhjá allri nostalgíju og fortíðarþrá. Það er kannski svolítið erfitt að bera hana saman við gömlu góðu myndirnar, enda í allt öðrum stíl, en fyrir mitt leiti er þessi best og ég get ekki beðið eftir þeirri næstu, sem er einmitt í vinnslu þessa stundina og á að koma út í júlí á næsta ári. Hún mun heit The Dark Knight og tekur auðvitað upp þráðinn þar sem síðasta mynd endaði, sem er einmitt á sama tímapunkti í Batman-tímalínunni og fyrsta myndin í gömlu seríunni byrjaði; sem sagt þar sem Jokerinn er aðalvondikallinn.
Ég er mjög spenntur fyrir þessari nýju seríu. Christopher Nolan tókst einstaklega vel upp með fyrstu myndina, náði að skapa mjög dimmt og magnþrungið andrúmsloft og náði upp gróðri blöndu af drama, spennu og gríni. Ef hann heldur áfram að leikstýra þessum myndum þá erum við í góðum málum. Christian Bale finnst mér líka alveg stórfínn í aðalhlutverkinu. Skemmtileg túlkun hjá honum á Bruce Wayne og síðan er hann fullur drunga og dulúðar – og síðast en ekki síst trúverðugleika – þegar hann smellir grímunni upp. Maður trúir því að hann sé virkilega leðurblökumaðurinn, annað en hægt er að segja um leikara eins og George Clooney í þessu hlutverki (reynum bara að gleyma þeirri mynd fyrir fullt og allt). En Bale klikkar ekki í þessu hlutverki, vel valið.
Það sem vekur hins vegar undrun mína er leikaravalið fyrir Jókerinn í komandi mynd. Þar erum við að tala um engan annan en Heath Ledger! Hvernig í ósköpunum ætlar Heath Ledger að fara að því að púlla Jókerinn off? Persónulega held ég að það verði aldrei betri Jóker, í þessum heimi eða öðrum, heldur en Jack Nicholson. Jack kallinn var fullkominn í þetta hlutverk, geðveikin skein úr augum hans og hárin risu á hnakkanum þegar hann hló þessum geðsjúka hlátri sínum. Algjörlega fullkomið! Þetta eru sko stór fótspor sem Hr. Ledger þarf að feta. En útkoman verður athyglisverð, svo mikið er víst. Ég bíð allavega spenntur!