Lausnir við tónlistargetraun #5
Þá liggja fyrir niðurstöður tónlistargetraunar #5. Alls bárust mér ágiskanir frá 9 þátttakendum en tveir þessara þátttakenda tóku þátt sameiginlega. Reyndist þetta vera erfiðasta getraunin til þessa, miðað við stigafjölda keppenda að minnsta kosti.
Keppendur voru þessir:
- Andri Þór Theodorsson
- Arnar Valgeir Sigurjónsson
- Ástþór Ágústsson
- Helgi Ólafsson
- Hildur Sævaldsdóttir & Eyvindur Ingi Steinarsson
- Jón Helgi Gíslason
- Valur Freyr Eiðsson
- Þóranna Hrönn Þórsdóttir
Og hér koma rétt svör:
#1. Electric Light Orchestra – Showdown
Helgi var sá eini sem hlaut 3 stig fyrir þetta, gat bæði flytjanda og lag, en Hildur & Eyvi voru með ELO á hreinu. Arnar giskaði á Isak Hayes og Valur taldi þetta vera Eric Clapton. Ekki slæmar ágiskanir en heldur ekki réttar. Aðrir skiluðu auðu.
#2. Cure – Close to Me
Sígildur 80s smellur hér á ferð með guðföður gotharanna í fararbroddi, Robert Smith. Það voru allir með það á hreinu að þetta væru The Cure en Ástþór og Arnar voru ekki með það hvað lagið héti. Andri Þór hélt reyndar að lagið héti Close to You, sem ég læt sleppa.
#3. Deep Purple – Burn
Þetta lag er hreint meistaraverk úr smiðju 70s rokksenunnar, eins og það gerist best bara. Arnar og Þóranna fengu bæði 3 stig fyrir réttar tillögur hér. Helgi kom með skemmtilega ágiskun um að þetta væri hljómsveitin The Nice og að lagið héti Rondo og Valur giskaði á að þetta væri eitthvað með Jethro Tull. Aðrir giskuðu ekki.
#4. Bon Jovi – Always
Þetta voru allir með rétt, nema Andri Þór, sem giskaði ekki einu sinni. Hann kallaði þetta bara “drasl”.
#5. Poison – Unskinny Bop
Þetta hélt ég einmitt að allir myndu hafa, enda eitt af vinsælustu lögum heims á sínum tíma. Arnar, Ástþór, Jón Helgi, Helgi og Hildur & Eyvi voru reyndar með þetta á hreinu, en Valur, Andri Þór og Þóranna höfðu ekki hugmynd og skiluðu auðu.
#6. Tom Petty & The Heartbreakers – American Girl
Þóranna var sú eina sem gat þetta rétt, sem kom mér á óvart, því hélt að fleiri myndu hafa þetta. En allavega vel gert, Þóranna. Arnar hélt að þetta væri jafnvel eitthvað með Steppenwolf meðan aðrir létu það vera að koma með ágiskanir á þetta.
#7. Placebo – Pure Morning
Frábært lag og mjög lýsandi fyrir tónlistina sem var í gangi seinni hluta tíunda áratugarins. Þóranna, Helgi og Hildur & Eyvi giskuðu ekki á þetta, en aðrir höfðu þetta rétt. Ég gat samt ekki gefið Andra Þór fullt hús fyrir þetta, því hann taldi lagið heita Friend in Need. Það kemur vissulega fram í textanum en það er ekki réttur titill, því miður. En hann Andri fær allavega eitt stig þarna fyrir að geta Placebo.
#8. Sone Temple Pilots – Plush
Þetta var gefins og bjóst ég við að allir hefðu þetta rétt. Sem varð raunin, fyrir utan það að Valur var með lagið vitlaust. Hann hélt að þetta væri Interstate Love Sing en það er allt annað lag með sömu hljómsveit. Valur fékk eitt stig hér meðan aðrir fengu þrjú.
#9. Kinks – Victoria
Þetta var sjálfsagt erfiðasta lagið í getrauninni og bjóst ég alveg eins við því að enginn myndi hafa þetta rétt. Maður verður að lauma einu svona erfiðu með í hverja getraun og í þetta skiptið var það gamli góði Kinks slagarinn. Sá eini sem hafði þetta rétt var Helgi Ólafs og fær hann lof fyrir það. Arnar hélt að þetta væri kannski eitthvað með Grateful Dead og Valur giskaði á Dire Straits. Aðrir giskuðu ekki.
#10. Fool’s Garden – Lemon Tree
Að lokum var svo hér eitt lauflétt sem allir höfðu rétt, nema Andri Þór. Hann var reyndar með lagatitilinn réttan, sem hann fær eitt stig fyrir, en hann giskaði á að þetta væri hljómsveitin Blind Melon. Held hann sé að rugla þarna saman orðunum Lemon og Melon, sem er svo sem alveg skiljanlegt.
Stigin féllu sem hér segir:
- 1. Helgi – 21
- 2. Arnar Valgeir – 19
- 3. Jón Helgi – 18
- 4. Þóranna – 18
- 5. Ástþór – 16
- 6. Hildur & Eyvi – 16
- 7. Valur – 13
- 8. Andri Þór – 8
Jón Helgi og Þóranna voru með jafnmörg stig, sem og Ástþór og Hildur & Eyvi. Í slíkum tilfellum gildir það að sá sem skilaði svörum sínum fyrst lendir í hærra sætinu.
Og þar með er það orðið ljóst að Helgi Ólfasson er sigurvegari tónlistargetraunar #5 á AndriHugo.com. Helgi er vel að titlinum kominn, enda fór hann í þriggja mánaða æfingabúðir til Súrínam fyrir keppnina og lagði blóð svita og tár í þátttöku sína að þessu sinni. Hjartanlegar hamingjuóskir, Helgi Ólafsson!

Það er nú ekki það sekmmtilegasta að hanga inni á góðum sumardögum með einhverja skíta flensu. En þannig er þessi vika búin að vera meira og minna, búinn að vera hundslappur, með einhverja bullandi pest. Þetta er víst að ganga núna, þekki ýmsa aðra sem hafa lent í þessu og marga hverja mun verr en ég. Ég missti ekki nema einn dag úr vinnu, svo þetta gæti alveg verið verra. En það er samt hundfúlt að geta ekki notið útiverunnar meðan veðrið er sæmilega gott. Frekar að spara þessa veikindadaga þar til að viðrar illa, en maður ræður víst hvenær maður lendir í þessu. Náttúran er óútreiknanlegt fyrirbæri.

Nýja platan með Queens of the Stone Age, Era Vulgaris, kemur út í næstu viku. En hún er auðvitað löngu komin á netið, enda geta gagnrýnendur og útvarpsstarfsmenn ekki setið á sér þegar þeir fá prómó-eintök í hendurnar. Þetta er orðið þannig að nánast allar plötur, stórar sem litlar, leka á netið einhverjum vikum fyrir tilsetta útgáfu. Það er spurning hvernig má komast hjá þessu og hvort það sé yfir höfuð hægt. Þetta er a.m.k. eitthvað sem útgefendur berjast hörðum höndum við að koma í veg fyrir en þetta virðist samt alltaf enda í sama pakkanum. Sjálfur sæki ég nú yfirleitt þær plötur sem ég hlakka til að heyra ef þær leka á netið, en mér þykir þetta samt leiðinlegt ástand og vonandi að þetta breytist eitthvað til hins betra í framtíðinni.
Hún mamma fór upp á land um helgina og tók bílinn með sér. Viti menn, bíllinn er eina helgi í Reykjavík og það er brotist inn í hann! Alveg dæmigert. Voðalegt afbrotabæli er þessi soraborg að verða. En ég veit nú samt ekki hvað vakti fyrir þessum moðhausi sem braust inn í bílinn okkar. Það eina sem hann stal var fronturinn af bílagræjunum… eins og hann hafi eitthvað við hann að gera! Allt annað var látið vera, iPod græja sem sem ég nota til að tengja iPodinn við bílinn, sjónauki, geisladiskar og ýmsilegt annað. Enginn fengur í þessum hlutum greinilega, en fronturinn á bílagræjunni? Þar er sko happahnoss á ferðinni! Andskotans fávitar.