
Við höfum tekið okkur saman nokkrir bloggarar og komið upp spjallborði. Þetta spjallborð er ætlað fyrri almenning, staður þar sem fólk getur komið saman og skipst á skoðunum og tjáð sig um heimsins mál. Þetta ætti að verða skemmtilegur stoppistaður fyrir bloggara og auðvitað bara alla aðra sem vilja láta í sér heyra. Titill spjallsins er einfaldlega
Haltu Kjafti! ;) Eins og er er þetta hýst á heimasíðu Vina Ketils Bónda, undir léninu http://www.vinirketils.com/haltukjafti. Það verður þar eitthvað til frambúðar, en ef þetta vex og dafnar vel þá er aldrei að vita nema við flytjum þetta yfir á sinn eigin stað á netinu. Okkur þætti mjög vænt um það ef þið mynduð kíkja þangað inn, skrá ykkur sem notendur og láta í ykkur heyra. Ennþá vænna þætti okkur um það ef þið mynduð linka í okkur af heimasíðum ykkar, ef þið búið svo vel að eiga eina slíka, með því að bæta þessum kóða einhversstaðar inn á síðuna:
<a href="http://www.vinirketils.com/haltukjafti/" target="_blank"><img src="http://vinirketils.com/img/haltukjafti/haltukjafti.jpg" alt="Málefnalegur vettvangur fyrir misvelgefið fólk" border="0"></a>
Við það að setja þennan kóða inn á síðuna bætist við lítil mynd/linkur, eins og sú sem er vinstramegin hjá mér undir öllum linkunum. Ef þið eruð með bloggsíðu hjá Blogspot getið farið þið bara inn í Templete og setjið þetta inn undir linkana ykkar eða á einhvern álíka stað.
Takk kærlega! :)
# Þetta skrifaði Andri Hugo
klukkan 01:39 |