Þá hafa mér borist ágiskanir frá sjö þátttakendum í tónlistar-getrauninni. Ég hefði reyndar viljað sjá fleiri taka þátt en þetta er nú samt alveg hin sæmilegasta þáttaka.
Keppendur voru þessir:
Og hér koma rétt svör:
#1. Reef - Place your hands
Fjórir þáttakendur með þetta rétt, þrír með rangt. Arnar giskaði á She's My Sister með Stone Roses, Henry giskaði á eitthvað með Dave Matthews Band og Ari skilaði auðu.
#2. Crash Test Dummies - Afternoons & Coffeespoons
Klassískur smellur frá 90s bandinu með djúpraddaða söngvarann. Arnar og Ari skiluðu auðu á þetta lag, aðrir voru með þetta á hreinu.
#3. Men at Work - Down Under
Einslagsundirð frá Ástralíu. Mjög 80s. Þetta voru allir með rétt, þótt sumir hafi ekki verið með titilinn alveg á hreinu. Land Under, Land Down Under og Down Under voru þó allt saman fullnægjandi ágiskanir.
#4. The Hives - Hate to Say I Told You So
Arnar og Ástþór héldu báðir að þetta væri Song 2 með Blur en aðrir svöruðu þessu rétt.
#5. Gary Glitter - Rock & Roll, Part 2
Þetta átti að vera rosa erfitt en reyndist auðveldara en ég hélt, þar sem fjórir voru með rétta lausn við þessu. Jón Helgi giskaði á eitthvað með Ozzy, Bogga fannst þetta hljóma eins og Talking Heads en var ekki alveg viss og Ástþór giskaði nokkuð skemmtilega á að þetta væri lagið Hey með The Wumwum Band.
#6. Tvíhöfði - La la la la Doddi litli
Þetta var kannski frekar kvikindislegt af mér, bjóst ekki við að neinn myndi geta þetta. En Boggi og Arnar eru greinilega með Tvíhöfðann sinn á hreinu og könnuðust strax við þetta. Þetta lag er reyndar flutt af Sverri Stormsker og Dodda litla, sem ég vissi ekki fyrr en Boggi benti mér á það, en það er allavega á Tvíhöfðaplötunni Til Hamingju svo ég tel þetta sem Tvíhöfðalag. En já, Arar og Boggi gátu þetta sem sagt rétt, Tóta giskaði á eitthvað með Baggalúti, Jón Helgi og Ástþór voru báðir nokkuð nálægt því og giskuðu á að þetta væru Fóstbræður og Ari giskaði einfaldlega á að þetta væri "eitthvað íslenskt". Henry skilaði auðu.
#7. Garbage - Only Happy When It Rains
Ari, Arnar og Jón Helgi voru með rétta svarið við þessu. Tóta var alveg ofsalega nálægt því, munaði bara einu orði. Hún giskaði á Only Happens When It Rains, sem ég gat því miður ekki gefið rétt fyrir. Henry var með Garbage á hreinu en ruglaðist á lögum og giskaði á Stupid Girl. Boggi giskaði út í bláinn á lagið Nondurkin með hljómsveitinni Durkin Love og Ástþór hélt að þetta væri hljómsveitin Catatonia með lagið Drop Dead Gorgeous.
#8. Jet Black Joe - I, You, We
Þetta var gefins. Allir með þetta rétt.
#9. The Cardigans - Hanging Around
Arnar, Ari og Boggi héldu allir að þetta væri Every You, Every Me með Placebo og Henry giskaði á Radiohead. Aðrir svöruðu réttu.
#10. Muse - New Born
Þetta virtist ekki vefjast fyrir neinum. Allir með þetta rétt.
Stigin féllu sem hér segir:
Ástþór, Arnar og Ari voru með jafnmörg stig, en skiluðu inn í þeirri röð sem stigataflan sýnir, Ástþór fyrstur og Ari síðastur.
Og þar með er hún Þóranna Hrönn Þórsdóttir krýndur meistari tónlistargetraunar Andra Hugo í þetta sinn og hefur því tryggt sér montréttinn fram að næstu getraun. Til hamingju með það, Tóta!
Svona fyrst það eru að koma jól og prófleiðinn sjálfsagt að drepa marga þá held ég að það sé tilvalið að fólk slíti sig frá bókunum og spreyti sig á eins og einni léttri getraun. Þetta er fjórða getraunin sem ég set saman og finn ég fyrir því að það verður erfiðara og erfiðara að setja þær saman eftir því sem þær verða fleiri, þar sem maður fer að verða uppiskroppa með hugmyndir að lögum sem sem flestir ættu að þekkja.
En ég held mér hafi tekist nokkuð vel til með að finna gott jafnvægi milli auðveldra og erfiðra laga í þessari getraun. Maður veit þó aldrei nákvæmlega með það, þar sem stundum vita allir það sem ég held að sé erfitt og fáir þekkja það sem ég hélt að allir gætu. Svo þetta er svolítið tvísýnt oft.
En jæja, þá að leiknum. Getraunin samanstendur af brotum úr 10 lögum sem ég hef klippt saman. Í brotunum eru engir textar, aðeins laglínur, sóló og melódíur sem ættu að kveikja á perunni hjá ykkur. Og, eins og alltaf vil ég fá ágiskanir frá sem flestum, alveg sama hversu vel eða illa þið haldið að þið hafið staðið ykkur. Það eru ekki margir sem eru með þetta allt á hreinu og því þarf enginn að skammast sín fyrir furðulegar ágiskanir. Því fleiri sem taka þátt, því skemmtilegri verður leikurinn.
Stigagjöfinni er þannig háttað:
Réttur flytjandi = 1 stig
Rétt nafn á lagi = 1 stig
Réttur flytjandi og rétt nafn á lagi = 3 stig
Mest er hægt að fá 30 stig í heild fyrir að giska rétt á alla flytjendur og heiti allra laga.
Getraunina má nálgast með því að smella hér eða einfaldlega smella á play hér fyrir neðan.
Svör berist svo til mín á MSN eða í gegnum e-mail (hvoru tveggja er andrihugo[hjá]hotmail.com). Vinsamlegast svarið ekki í comentakerfið!
Komið þið nú öll margblessuð og sæl. Það er orðin drykklöng stund síðan maður henti inn línu hingað á blessað bloggið. Ég held ég hafi bara verið of upptekinn af því að slaka á og hafa það gott í þessu ágætis fríi sem ég fékk heima á íslandi í haust. Hefði svo sem alveg viljað hafa haft meira að gera, en ég dundaði mér jú eitthvað. Hélt t.d. upp á þrítugsafmælið mitt, skellti mér til Reykjavíkur eina helgi og var svo að vinna eitthvað líka. Síldin byrjaði reyndar töluvert seinna en ég hafði vonað, svo ég náði ekki eins miklu af vertíðinni og ég hafði vonað. Náði samt einhverjum 10 vöktum eða svo, sem er betra en ekkert. En nú er ég sem sagt kominn aftur út til Amsterdam og byrjaður í skólanum á nýjan leik.
Það er auðvitað ekki laust við að maður finni herða svolítið að á þessum tímum eins og allir aðrir. Ekki auðvelt að vera á fátæklegum námslánum meðan ástandið er eins og það er, en maður reynir að gera það besta úr því sem maður hefur fyrir framan sig. Maður kemst í gegnum þetta eins og aðrar þrengingar. Það er ferlega fúlt að horfa á hvernig gengi krónunnar veikist og veikist með hverjum deginum en maður verður bara að hugsa jákvætt og horfa fram á við. Er það ekki?
Ég er núna byrjaður að leigja með tveimur nýjum félögum. Hinir peyjarnir, sem ég bjó með á síðasta ári, eru allir farnir aftur heim til Íslands, svo ég varð að finna mér nýja herbergisfélaga. Og það var nú ekki lengi gert. Annar þeirra er Reykvíkingur sem var að byrja í sama námi og ég er í núna í byrjun september. Hinn er Íslendingur að uppruna en hefur búið hér síðan hann var krakki, í einhver 20 ár eða svo. Og saman leigjum við þrír þessa fínu íbúð í vesturhluta Amsterdam. Frábært hverfi sem við erum í og mjög stutt í bæinn. Annað en sveitalífið í norðurhluta Amsterdam eins og í fyrra, sem var reyndar mjög fínt líka, en frekar langt í alla þjónustu og þessháttar.
Netsamband er ekki til staðar á heimilinu eins og er. Það var virkt fyrstu dagana eftir að ég kom aftur út, en stuttu seinna þá hrundi routerinn sem internetþjónustan hafði skaffað okkur og síðan hefur þetta verið eintómt vesen. Ég ætla ekkert að fara út í það í neinum smáatriðum, en þjónustan hjá internetfyrirtækjum hérna er alveg hlægilega léleg. Svo við erum að vesenast í þessu og erum að vonast til að netsamband verði loks komið á fyrir næstu helgi.
Á meðan þarf ég að láta mér duga að kíkja á netkaffi. Það er reyndar ekki langt að fara, bara hérna aðeins neðar í götunni er þetta fínasta netkaffi. Eigandinn er vinalegur múslimi og heitir Mustafa. Þessa stundina er hann einmitt að hlusta á bænirnar sínar í útvarpinu; kyrjandi múslimaprestur flytur bænir og les ritningar úr kóraninum á laugardagseftirmiðdegi, eins og ekkert sé sjálfsagaðara. Og auðvitað er ekkert sjálfsagðara fyrir mann eins og Mustafa.
Jæja, læt þetta duga í bili. Ætla að skella mér í smá hjólreiðatúr á nýja hjólinu sem ég keypti mér í gær. Það er gott veður úti og ferska loftið ákallar mig. Örlítið kalt reyndar, enda kominn vetur og fer að styttast allverulega í jólin. Maður verður bara kominn aftur heim í jólafrí áður en maður veit af!
Ég hélt upp á afmæið mitt um helgina, sem var virkilega skemmtilegt og þakka ég þeim sem mættu kærlega fyrir mig. Þetta var alveg ótrúlega gaman. Ég hef ekki haldið formlega upp á afmælið mitt, með veislu og öllu tilheyrandi, síðan ég var 16 ára og bauð nokkrum vinum mínum heim í pizzupartí. Heil 14 ár liðin síðan þá, svo það var alveg kominn tími á þetta. Veisluna hélt ég á Conero, fyrir ofan Café María, og þar skemmtum við okkur, vel valinn og góðmennur hópur fram eftir, þangað til við kíktum yfir í Kiwanis, þar sem Susarar héldu sitt ball. Gott kvöld í flesta alla staði myndi ég segja, fyrir utan blöðruatvikið svokallaða.
Þannig var að ég var að blása upp rauða, hjartalaga blöðru í mestu rólegheitum. Ég var búinn að blása ágætlega í hana, en þó ekki það mikið að hún ætti að springa. En það gerði hún, með miklum kvelli og beint upp við augað á mér. Ég sá þess vegna aðeins hálfa sjón það sem eftir lifið kvölds og augað er ekki ennþá búið að ná sér að fullu. ég sé ennþá nokkuð þokukennt út um vinstra augað auk þess sem ég er frekar aumur í kringum það og á erfitt með að fókusera á hluti nálægt mér án þess að finna svolítið til. En þetta ætti nú að jafna sig á nokkrum dögum. Ef ekki, þá verð ég að kíkja til læknis og athuga hvort eitthvað sé hægt að gera í þessu.
En það fylgir þessu nokkuð merkileg hliðarsaga. Ég talaði við vinkonu mína í gær sem hafði verið í annarri afmælisveislu þetta sama kvöld í Reykjavík. Þar kom alveg eins atvik fyrir vinkonu hennar, sem hafði verið að blása upp nákvæmlega eins rauða, hjartalaga blöðru! Hún slapp reyndar betur en ég, þar sem blaðran sprakk upp við kinnina á henni, en hún var nú samt svolítið aum og skelkuð eftir þetta. Þetta getur ekki verið tilviljun!
Þannig að ég bið ykkur bara um að passa ykkur á rauðum, hjartalaga blöðrum í framtíðinni. Greinilega gölluð vara þarna á ferð.
Jæja, komiði nú öll sömul margblessuð og sæl. Þá er maður mættur heim á klakann á nýjan leik og nú verður loksins tekið almennilegt stopp á þetta. Fyrra árinu í skólanum er lokið og það seinna byrjar ekki aftur hjá mér fyrr en um miðjan nóvember, svo maður getur þá notið þess að vera hér í heimahögum í rúma tvo mánuði. Ekkert nema gott um það að segja.
Annars gekk fyrsta árið hjá mér bara alveg ljómandi vel. Fékk einkunnir í hendurnar í gær og lokaeinkunnin mín var 80, sem var næsthæsta einkunnin í bekknum. Svo ég get ekki verið annað en sáttur með það. Þannig að núna er maður kominn með diplómu í hljóðverkfræði. Næsta skref er að taka BA gráðuna, sem er eitt ár til viðbótar, einnig í heilsársnámi eins og fyrra árið var, sem þýðir að ég fæ eingöngu fjórar frívikur frá nóvember á þessu ári fram í nóvember á næsta ári. Dúndur.
En hvað er annars að frétta? Heimskuleg spurning að spyrja að á bloggi, finnst ykkur ekki? Ég er hress. Hress sem fress. Kátur sem slátur. Í stuði með guði. Glaður sem... maður. You get the point.
Ég fann loksins nýja íbúð í Amsterdam eftir töluverða leit. Það er algjör hausverkur að leita sér að húsnæði þarna ytra, svo það var gríðarlega gott að ljúka því af áður en ég fór heim í frí. Það hefði verið tvöfaldur hausverkur að þurfa að leita að einhverju héðan frá Íslandi. En ég verð sem sagt með tvo meðleigjendur með mér næsta árið. Annar gaurinn er nýbyrjaður í skólanum á sömu braut og ég og verður þar næsta árið. Hinn dúddinn er Íslendingur að uppruna en hefur búið í Amsterdam síðan hann var þriggja ára gamall. En hann hefur haldið íslenskunni við í öll þessi ár og kann því bæði tungumálin reiðbrennandi. Það verður munur að búa með einhverjum sem kann inn á allt þarna, þekki samfélagið inn og út og getur upplýst mann um eitt og annað forvitnilegt. Það mun gefa dvölinni þarna úti aðra vídd.
Jæja, ég ætla að henda mér í rúmið mitt góða. Hafið það gott.
Þá er maður orðinn þrítugur, sem þýðið að spádómurinn rættist ekki (þeir fatta það sem fatta). Ég bjóst alveg eins við því að vakna í morgun, orðinn gráhærður og með staf, en það eru víst einhver á í það ennþá. Þrjátíu ár eru ekki neitt... isss, Einar frændi minn er 40 ára! En orðið “fertugsaldurinn” er orð sem ég vil helst ekki hafa eftir mér (oftar en í þetta eina skipti). Ég man að ég hugsaði það sama þegar ég varð 20 ára, hvað það væri skrýtið að maður væri kominn á þrítugsaldurinn. En mér fannst það bara meira kúl þá. Þetta þykir mér minna kúl, enn sem komið er allavega. Maður lærir kannski að elska þetta með tímanum.
Svo fékk maður þessa líka glæsilegu afmælisgjöf rétt í þessu – Íslendingar komnir í úrslitaleikinn í handboltanum á Ólympíuleikunum. Þvílík og önnur eins snilld! Ansi góð afmælisgjöf það! Það er svona þegar maður gerir ekki miklar væntingar til liðsins, að þá koma þeir manni mest á óvart. Gull yrði auðvitað ólýsanlega gott, en ég er sáttur með að við vinnum bara til verðlauna. Það er stórkostlegur árangur og alveg frábært fyrir menn eins og Óla Stefáns og Sigfús Sigurðsson, sem eru búnir að vera í þessu hvað lengst. Ég samgleðst þeim alveg út í hið óendanlega.
Í afmælisbloggum mínum í gegnum árin hef ég verið vanur að líta aðeins á hvað tölustafir samsvarandi aldurs míns þýða og hvaða merkingu þeir hafa um víða veröld. Hefðin heldur hér áfram.
Jæja, skóli í kvöld til klukkan 20:00 og eftir það verður kíkt aðeins í bæinn og fengið sér öl í tilefni dagsins til að fagna þessum tveimur merku áföngum.
Áfram Ísland á sunnudaginn!
:: Next Page >>
| Next >
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | > >> | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
![]() |
| Beck |
Credits: blog software | web hosting | monetize